Hóladómkirkja

 

Sveifla á síðkvöldi

Þriðjudaginn 18. ágúst fengum við að heyra tvo unga menn leika listilega á hljóðfæri sín, harmóníku og gítar.  Þeir léku í Auðunarstofu fyrir stóran hóp áheyrenda sem margir voru langt að komnir.

Jón Reynir Þorsteinsson er okkur hér á Hólum að góðu kunnur.  Hann hefur margoft spilað hér við athafnir og haldið tónleika, auk þess sem hann hefur ósjaldan sungið með kirkjukórnum í Hóladómkirkju.

Guillaume Rex, sem er franskur, hefur dvalið á Hólum sumarlangt.  Hann mun hefja framhaldsnám í klassískum gítarleik í Sorbonne í haust.

Efnisskráin var óvanaleg.  Auk þekktra djasslaga tóku þeir mörg af okkar góðu þjóðlegu lögum í nýjum búningi.  Það var gaman að heyra Ó, blessuð vertu sumarsól og Nú er frost á Fróni í sveiflutakti.

Margrét Sigtryggsdóttir, 20/8 2009 kl. 10.05

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS