Samspil á flautu og orgel í messunni s.l. sunnudag
Sr. Sveinbjörn Einarsson sóknarprestur á Blönuósi kom með fríðu föruneyti til Hóla s.l. sunnudag, 11. júlí. Með honum var Sólveig Einarsdóttir organisti og söngstjóri, og hópur söngfólks úr prestakallinu. Hallfríður Ólafsdóttir sem er leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands lék með Sólveigu for- og eftirspil, ásamt sálmunum. (Myndirnar eru úr Fréttablaðinu Húna frá vígslu nýja orgelsins í Blönduósskirkju í nóvember 2009. )
Margrét Sigtryggsdóttir, 15/7 2010 kl. 21.57
