Góð aðsókn að sumartónleikum í kirkjunni
Sunnudaginn 25. júlí voru það Skagfirðingar sem skemmtu áheyrendum í Hóladómkirkju. Hinn sívinsæli Geirmundur Valtýsson gladdi heimamenn og gesti með lögum sínum, með aðstoð hinnar ungu og glæsilegu söngkonu Ingunnar Kristjánsdóttur.
Næsta sunnudag, 1. ágúst, fáum við að heyra aðra söngkonu, Ingibjörgu Guðjónsdóttur, sem flytur fjölbreytta tónlist ásamt gítarleikaranum Hannesi Guðrúnarsyni. Þetta er í fyrsta sinn sem Ingibjörg syngur hér hjá okkur, en bræður hennar tveir, þeir Ómar og Óskar eru okkur að góðu kunnir frá því að þeir komu fram á Hólum ásamt fríðu föruneyti djassista fyrir nokkrum árum.
Margrét Sigtryggsdóttir, 27/7 2010 kl. 22.08