Konur í meirihluta
Kvenþjóðin hefur verið dugleg undanfarið að flytja Skagfirðingum og ferðafólki sem kemur heim að Hólum góða og fallega tónlist. Fyrst skal talin Alexandra Chernyshova sem söng í kirkjunni 20. júní. Sunnudaginn 4. júlí komu til okkar þær Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Elísabet Waage hörpuleikari. Á morgun, sunnudaginn 11. júlí fáum við að hlýða á flaututríó, Berglindi Stefánsdóttur, Hallfríði Ólafsdóttur og Magneu Árnadóttur. Þar kemur einnig við sögu Sigurgeir Agnarsson sellóleikari. Tónleikarnir hefjast að vanda kl. 14 og eru ókeypis.
Margrét Sigtryggsdóttir, 10/7 2010 kl. 13.58