Sólin skein ekki
Það telst fréttnæmt að sólin skíni ekki glatt á Hólahátíð. Hún sýndi sig ekki fyrr en á sunnudagskvöld þegar flestir gestir voru að tygja sig til heimferðar. Veður var milt en rigning gerði pílagrímum sem fóru í Gvendarskál erfiðara fyrir en ella.
Hluti hópsins fyrir brottför. Allir sem luku göngunni fengu viðurkenningarskjal í kvöldbænunum.
Prestar ganga úr kirkju eftir hátíðarmessuna með vígslubiskup í broddi fylkingar.
Mörg atriði önnur voru á dagskrá Hólahátíðar í ár.
Brosmildir þátttakendur eftir kirkjukaffið Undir Byrðunni. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld Hólahátíðar 2010, sem flutti nokkur ljóða sinna, hrífandi og skemmtileg. Prestshjónin á Möðruvöllum, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og sr. Gylfi Jónsson, ásamt vígslubiskupi og Sólrúnu Harðardóttur.
Við sama tækifæri náðust á mynd Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, sem flutti Hólaræðuna 2010, og Benedikt Gunnarsson listmálari. Hann flutti stutt erindi á samkomunni í Auðunarstofu á sunnudagsmorguninn um Hallgrím Pétursson og áhrif hans á líf sitt og starf, og afhenti Hóladómkirkju að gjöf málverk af skáldinu. Menntamálaráðherra flutti einnig þennan morgun ávarp þar sem hún ræddi upphaf prentlistar á Íslandi, hversu mikil áhrif hún hafði á menningu og tungu Íslendinga og nauðsyn þess að varðveita prentminjarnar og prentarfinn. Lýsti hún stuðningi sínum yfir því að prentminjasafni yrði komið fyrir á Hólum, vöggu prentlistarinnar hér á landi.
Frá kvöldvökunni á laugardagskvöldið sem haldin var við Grunnskólann. Hólastaður í baksýn hjúpaður ágúströkkrinu.
Sögusetur íslenska hestsins var opnað með pompi og prakt. Arna Björg Bjarnadóttir tekur hér á móti landpóstinum á glæsilegri opnunarhátíð þar sem tekið var á móti gestum utandyra með tónlist og góðum veitingum. Ávörp velunnara setursins og opnunarræða menntamálaráðherra ásamt skemmtilegu ívafi við gamlar hefir jók á hátíðleikann. Vígslubiskup blessaði húsið áður en gengið var inn og sýningar skoðaðar.
Margrét Sigtryggsdóttir, 16/8 2010 kl. 19.58






