Hóladómkirkja

 

Annað þing Ríkíní, félags um forna tónlist

Voces Thules komu fram á þinginu í fyrra.  Þeir munu aftur eiga stóran þátt á þessu ári.  Öllum er heimil þátttaka í þinginu.

Annað þing Ríkíní, félags um forna tónlist verður haldið á Hólum í Hjaltadal helgina 27. til 29. ágúst. Félagið var stofnað fyrir tveimur árum af áhugafólki og fræðimönnum um fornan tónlistararf  Íslendinga. Í íslenskum handritum er allmikið af tónlist og mest af henni hefur ekki verið flutt eða komið fyrir eyru manna öldum saman.  Markmið félagsins er að styðja við flutning og rannsóknir á þessum forna arfi. Þing félagsins sem nú er haldið öðru sinni á Hólum er samkoma þar sem áhuga og fræðimenn leiða saman hesta sína og segja frá því markverðasta sem þeir hafa verið að skoða.  Jafnframt er flutt tónlist og þingmenn syngja saman messu.  Öllum er frjáls aðgangur að þinginu og ekkert þing-gjald tekið af gestum. Fólk þarf hvorki að vera tónlistar- né fræðimenn   til að njóta þess sem boðið er uppá. Ferðaþjónustan á Hólum hefur gert gestum gott tilboð í gistingu og uppihald. Á þinginu í ár verður sungin messa eftir messuköflum Ærlækjarbókar sem er skinnhandrit frá því um 1500 og Sverrir Tómasson mun fjalla um handritið og heilagan Nikulás. Voces Thules leiða sönginn. Einnig verður Árni Heimir Ingólfsson með erindi um handritsbrot frá 15. öld og Spilmenn Ríkínís kynna veraldlegu lögin í handritinu Melodia og leika á hljóðfæri sín.  Messan verður sungin á sunnudeginum kl.11:00.  Eftir hádegi verða síðan tónleikar á vegum félagsins í Hóladómkirkju. Eins og áður sagði eru allir velkomnir.

Nánari upplýsingar veitir Örn Magnússon (s. 862 3119 / 551 3119, omag@ismennt.is)

Dagskrá þingsins fer fram í Auðunarstofu nema annað sé tekið fram.

Annað þing Ríkíní, félags um forna tónlist.  Helstu liðir.

föstudagur 27. ágúst

kl. 18:00 Tíðir í Hóladómkirkju.

kl. 20:00 Voces Thules: Messukaflar í Ærlækjarbók.

Kynning  og fyrsta æfing fyrir messu sunnudagsins.

laugardagur 28. ágúst

kl. 13:30-14:20 Spilmenn Ríkínís: Veraldlegu lögin í Melodia handritinu.

Spilmenn spjalla um hugsanlegan aldur, uppruna og útsetningar í bland við tónlistarflutninginn.

kl. 14:30 -15:30 Sverrir Tómasson. „Bið fyrir mér dándikall“. Nikulás saga og Nikuláss tíðir í Ærlækjarbók, AM 640 4to, handriti frá lokum 15. aldar.

kl. 17:00 Árni Heimir Ingólfsson. Tvísöngur og tripl í AM 687b 4to.

kl.  18:00 Tíðir í Hóladómkirkju.

kl. 21:00 Kvöldvaka í skólanum.

Þingmenn  troða upp  með tónlist eða  talað mál, kveða sér hljóðs eða leggja fram spurningar sem brenna á mönnum eftir daginn.

sunnudagur 29. ágúst

kl.  9:00-10:00 Aðalfundur Ríkínífélagsins

kl. 11:00 Sungin messa í Hóladómkirkju eftir messuköflum Ærlækjarbókar. Voches Thules leiða sönginn.

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson þjónar.

kl. 14:00 Tónleikar í Hóladómkirkju á vegum Ríkíní félagsins.

Margrét Sigtryggsdóttir, 23/8 2010 kl. 12.14

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS