Hóladómkirkja

 

Hólahátíð nálgast

Hólahátíð í ár er helguð unga fólkinu og mun margt ungt fólk sem starfar innan og utan kirkjunnar koma að hátíðinni með einhverjum hætti.  Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra flytur Hólaræðuna í ár síðdegis á sunnudag.  Einnig mun hún vera við opnun Söguseturs íslenska hestsins á laugardaginn.  Að vanda verður margt uppbyggjandi fyrir líkama og sál: messur og menningarsamkomur, pílagrímagöngur og hlaup, varðeldur og veisluföng, svo eitthvað sé nefnt! 

Á Hólahátíð 2010 gefst gott tækifæri fyrir alla til að hreyfa sig og kynnast um leið gömlum þjóðleiðum, sem pílagrímar fóru á leið sinni heim að Hólum, taka þátt í helgihaldi og fá fylgd góðra leiðsögumanna og fararstjóra.

Þrjár göngur og eitt hlaup eru í boði laugardaginn 14. ágúst. Tvær lengri leiðir með 8-9 klukkustunda göngu um Heljardalsheiði og frá Flugumýri að Hvammi í Hjaltadal og ein styttri helgiganga í Gvendarskál þar sem vígslubiskup messar.

Gvendarskál
Lagt af stað kl. 12:30 frá anddyri Hólaskóla og gengið í Gvendarskál þar sem vígslubiskup syngur pílagrímamessu við altari Guðmundar góða og sr. Gunnar Jóhannesson flytur hugvekju.

Klukkan 13:30 stendur Ungmennafélagið á staðnum fyrir hlaupi frá Hólastað í Gvendarskál. Þar sameinast göngu- og hlaupahópar í helgihaldi við altari Guðmundar góða.

Heljardalsheiði
Gengin verður gömul þjóðleið úr Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði. Lagt verður upp frá Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 9.30 laugardaginn 14. ágúst en sætaferð verður þangað frá Hólum kl. 7 fyrir þau sem það kjósa. Reiknað er með átta stunda rólegri göngu. Farartálmar eru ekki á leiðinni en fólk verður aðstoðað yfir Kolbeinsdalsá og til Hóla. Nauðsynlegt er þó að vera vel útbúinn og vel skóaður. Farar­stjórar yfir Helju verða sr. Guðrún Eggertsdóttir og Hjalti Þórðarson, landfræðingur.

Flugumýri - Hvammur í Hjaltadal

Mæting er við Flugumýrarkirkju kl. 7:30 og kirkjan skoðuð. Gengið upp með Hvammsgili sunnanverðu upp fyrir foss efst í gljúfrinu. Þar er farið yfir ána og síðan sem leið liggur upp í Ranghala sem er þröng skora á milli dala. Þetta er erfiðasti hluti leiðarinnar og tekur hann að lágmarki tvær klukkustundir. Síðan er gengið eftir Ranghala og svo áfram eftir endilöngum Austurdal. Það er dálítið á fótinn en tiltölulega auðveldur kafli og lengi vel er gengið eftir þokkalegum fjárgötum. Áætlaður göngutími þessa hluta er u.þ.b. 2 tímar. Þá kemur brattur en ekki langur kafli upp á fjallið milli Austurdals og Hvammsdals í ríflega 1000 metra hæð sem tekur að lágmarki 1 klst. í viðbót. Síðasti kafli leiðarinnar er svo niður Hvammsdal sem er mjög grýttur framan til að Hvammi í Hjaltadal, þangað sem hópurinn verður sóttur á bíl. Þetta telst erfið ganga og áætlaður heildargöngutími er um 9 klukkustundir. Leiðsögumaður er Þórarinn Magnússon, bóndi á Frostastöðum.

Þátttaka í lengri göngurnar tilkynnist til  malfridur@holar.is

Margrét Sigtryggsdóttir, 7/8 2010 kl. 15.36

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS