Sumri hallar
Sunnudagurinn 22. ágúst var síðasti venjulegi messudagurinn á sumrinu. Gestir úr Þingeyjarprófastsdæmi þjónuðu í messunni kl. 11. Það var prófasturinn sr. Jón Ármann Gíslason sem messaði og kona hans sr. Hildur Sigurðardóttir hljóp í skarðið fyrir heilan kirkjukór. Kirkjukór og organisti frá Raufarhöfn sem ætluðu að fylgja prófasti sínum til Hóla forfallaðist á síðustu stundu. Organistinn okkar, Jóhann Bjarnason, lék á orgelið og Hildur var forsöngvari, en hún leggur stund á söngnám í Reykjavík.
Íslenski saxófónkvartettinn var með glæsilega tónleika kl. 14:00 þar sem m.a. var frumflutt nýtt íslenskt verk.
Íslenski saxófónkvartettinn er fyrsti og eini starfandi klassíski saxófónkvartettinn á Íslandi. Kvartettinn hélt sína fyrstu tónleika í október 2006 þegar hann fékk styrk til tónleikahalds á landsbyggðinni frá FÍT og F.Í.H. Síðan þá hefur hópurinn m.a. leikið á Björtum dögum í Hafnarfirði, Sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns, á Háskólatónleikum, í 15.15-tónleikaröðinni í Norræna húsinu og á Tíbrár-tónleikum í Salnum í Kópavogi. Á næsta ári mun kvartettinn m.a. leika með Kammersveit Reykjavíkur. Íslenska saxófónkvartettinn skipa:
Vigdís Klara Aradóttir sópran-saxófónn
Sigurður Flosason alt-saxófónn
Peter Tompkins tenór-saxófónn
Guido Bäumer barítón-saxófónn
Hljóðfæraleikararnir hafa allir fjölbreytilegt nám og reynslu að baki. Vigdís Klara stundaði m.a. nám í klassískum saxófónleik í Sviss ásamt klarinettnámi og námi á fimm klappa klarinett og chalumeau, Sigurður er vel þekktur jassleikari sem stundaði einnig nám í klassískum saxófónleik hér heima og í Bandaríkjunum, Peter stundaði nám í London og er m.a. óbóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur leikið mikið með Bachsveitinni í Skálholti, Guido stundaði nám í Þýskalandi, Sviss og Bandaríkjunum og er einnig menntaður þverflautukennari.
Þórður Magnússon tónskáld hóf ungur nám í gítar- og píanóleik. Þórður naut m.a. handleiðslu Guðmundar Hafsteinssonar í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk tónfræðideildarprófi frá skólanum 1996. Hann hlaut styrk úr minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat 1997 og hélt um haustið til Frakklands til að stunda tónsmíðanám í Conservatorie National Supérieur de Musique de Paris. Verk eftir Þórð hafa m.a. verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Árið 2004 fékk Þórður Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir fyrstu sinfóníu sína. Verk Þórðar hafa verið flutt af hinum ýmsu hópum, svo sem Caput-hópnum, Tríó Nordica og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Tónleikarnir voru haldnir í samstarfi við verkefnið ”Tónleikar á landsbyggðinni” sem er á vegum Félags íslenskra hljómlistarmanna og Félags íslenskra tónlistarmanna.
Verkefnið er styrkt af menntamálaráðuneytinu
Á efnisskránni voru verk eftir
Gabrieli
Domenico Scarlatti (1685-1757)
Þórð Magnússon (f. 1973) Saxófónkvartett (2010) FRUMFLUTNINGUR
Verkið var samið fyrir Íslenska saxófónkvartettinn með styrk frá Musica Nova
Johann Sebastian Bach (1685-1750)
Jean-Baptiste Singelée (1812-1875)
Margrét Sigtryggsdóttir, 23/8 2010 kl. 11.38


