Hóladómkirkja

 

Þriðja þing Ríkíní, félags um forna tónlist

Síðustu tónleikar sumarsins verða næstkomandi sunnudag kl. 14.  Þeir eru á vegum Ríkíní félagsins sem heldur sitt þriðja þing nú um helgina 26.-28. ágúst.  Fjöldi fræðimanna mun flytja fyrirlestra um helgar meyjar - og sungin verður messa lík þeim sem Guðbrandur biskup söng hér fyrir 400 árum.
Dagskráin í heild fer hér á eftir.

Þriðja þing Ríkíní, félags um forna tónlist,
haldið á Hólum í Hjaltadal 26. til 28. ágúst 2011
Kvæði og söngvar af helgum meyjum
föstudagur 26. ágúst
kl. 21:00 Uppruni meyjasagna. Hvernig þær berast hingað og varðveisla þeirra hér. Yfirlit yfir umfang kvæðanna í íslenskum heimildum. Umsjón Svanhildur Óskarsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir.
laugardagur 27. ágúst
Umfjöllun um kvæði af heilögum meyjum, heimildir og fluttningur kvæðanna
kl. 9:30-10:15 Heilög Úrsúla / Gunnsteinn Ólafsson
kl. 10:20-11:05 Heilög Margrét / Ingibjörg Eyþórsdóttir
kl. 11:10-11:55 Heilög Agnes / Guðmundur Steinn Gunnarsson og Katelin Parsons
hádegishlé
kl. 13:30-14:15 Heilög Dóróthea / Árni Heimir Ingólfsson
kl. 14:20-15:05 Heilög Barbara / Bára Grímsdóttir
kl. 15:05-15:50 Heilög Veróníka / Smári Ólason
kaffihlé
kl. 18:00 Sungnar tíðir í Hóladómkirkju
kl. 19:30 Hátíðarkvöldverður og samvera í Hólaskóla.

sunnudagur 28. ágúst
kl. 9:00 Aðalfundur Ríkíní-félagsins í Auðunarstofu.
kl. 10:00 Æfing fyrir Grallara-messu.
kl. 11:00 Sungin messa úr Grallara Guðbrands Þorlákssonar í Hóladómkirkju, séra Jón A. Baldvinsson vígslubiskup þjónar. Forsöngvari er Smári Ólason. Allir gestir hátíðarinnar taka þátt.
kl. 14:00 Tónleikar í Hóladómkirkju á vegum Ríkíní-félagsins.
kl. 15:00 Þingslit.
Dagskráin fer fram í Auðunarstofu nema annað sé tekið fram. Allir velkomnir.

Margrét Sigtryggsdóttir, 25/8 2011 kl. 17.11

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS