Sunnudagur 28. ágúst
Guðbrandi Þorlákssyni var gert hátt undir höfði í messunni. Upprunalega útáfa biblíunnar var tekin fram. Víglsubiskup söng messu úr Graduale Guðbrands ásamt þátttakendum í Ríkíniþinginu. Forsöngvari var Smári Ólason sem færði hann í auðlæsan búning sérstaklega fyrir þessa messu. Hluti þingfulltrúa sést hér að neðan, Örn Magnússon og Marta Guðrún Halldórsdóttir fremst í flokki. 
Á tónleikunum síðdegis voru flutt kvæði fjögurra helgra meyja. Kór söng útsetningu Smára Ólasonar á Veróníkukvæði sem einnig stjórnaði kórnum. Árni Heimir Ingólfsson sagði lítillega frá sankti Dórótheu. Hann hafði einnig gert útsetningu fyrir Örn og Mörtu - sópran og orgel, sem þau fluttu. Næst var heilög Margrét. Hennar sögu flutti Ingibjörg Eyþórsdóttir og Örn lék undir á symfón og að síðust var Barbörukvæði flutt af nær öllum hópnum, en það hafði Bára Grímsdóttir útsett fyrir margar raddir og hin ýmsu hljóðfæri, m.a. greiður!
Margrét Sigtryggsdóttir, 28/8 2011 kl. 16.54
