Messa á siðbótardegi
Messað verður í Hóladómkirkju næstkomandi sunnudag, þann 30 október, kl. 14
Kirkjukór Hóladómkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Jóhanns Bjarnasonar organista.
Í messunni syngja einnig litháski kórinn Kaunas Skólakór „Allegro ” undir stjórn Alvinu Poderiene og Stúlknakór Söngskóla Alexöndru undir stjórn Alexöndru Chernyshovu, en hann mun jafnframt syngja fyrir kirkjugesti að messu lokinni.
Sr. Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla prédikar í messunni og fyrir altari þjóna sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson víglubiskup og sr. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur.
Margrét Sigtryggsdóttir, 27/10 2011 kl. 11.44