Námskeið í tíðasöng 28.-29. október
Á námskeiðinu verður klassískur íslenskur tíðasöngur kynntur og æfður. Til hliðsjónar verður höfð nýútkomin bók Glúms Gylfasonar Íslenskur tíðasöngur. Námskeiðið býður upp á gott tækifæri fyrir alla sem vilja kynna sér og njóta íslensks tíðasöngs. Leiðbeinendur hafa allir mikla þekkingu á íslenskum tíðasöng og margra ára reynslu af flutningi hans. Þeir eru : Glúmur Gylfason, Kristinn Ólason og Kristján Valur Ingólfsson
Sjá frekar hér að neðan.
Margrét Sigtryggsdóttir, 8/10 2011 kl. 21.09