Tíðasöngur og messa
Það var óvenju mikið um að vera í kirkjunni helgina 28. – 30. október.
Áður auglýst tíðasöngsnámskeið hófst á föstudagskvöldið með Vesper kl. 18. Þátttakendur voru um 15 talsins. Að loknum kvöldverði var kennsla og æfing á morgunsöng sem svo var sunginn ljúft og lipurlega á laugardagsmorgni.
Farið var í gegnum fleiri tíðir seinna um daginn, m.a. aðventutíðagjörð. Námskeiðinu lauk um kaffileytið.
Dr. Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla, sem kenndi á námskeiðinu dvaldi hér fram á sunnudag og predikaði við almenna guðsþjónustu kl. 14. Sóknarpresturinn og vígslubiskup þjónuðu fyrir altari. Ungmenni frá Litháen og úr Skagafirði ásamt aðstandendum fylltu kirkjunna og sungu þessir 2 kórar bæði í messunni og í kirkjunni að henni lokinni. Það var Alexandra Chernyshova sem stóð fyrir þessari heimsókn.

Hluti af stúlknakór Alexöndru.
Fleiri myndir
Litháenski kórinn afslappaður fyrir messu og í kórdyrum á tónleikunum

Tveir prestar og vígslubiskup:
Flóki, Þorgrímur og Kristján Valur
í upphafi námskeiðs

Tveir prestar og vígslubiskup:
Gunnar, Kristinn og Jón
í upphafi messu
Margrét Sigtryggsdóttir, 30/10 2011 kl. 18.33

