Aðventan gengin í garð
Dagskráin í kirkjunni verður með hefðbundnum hætti þetta árið. Fjölskylduhátíðin með þátttöku barnanna verður 11. des kl. 14 og aðventukvöld kirkjukórsins þriðjudaginn 13. des kl. 20:30. Skagfirski kammerkórinn heldur tónleika sína 20. des. kl. 20.
Á aðfangadagskvöld komum við saman og syngjum inn jólin kl. 23, hátíðarmessa á jóladag kl. 14 og á gamlárskvöld kveðjum við árið með stuttri þakkargjörð kl. 17.
Auk atburðanna í kirkjunni verður margt fleira um að vera á Hólastað, t.d. aðventukaffi og kökubasar á vegum kvenfélagsins 4. desember. Sjá nánar.
Margrét Sigtryggsdóttir, 2/12 2011 kl. 11.30