Nú styttist óðfluga í árlega Hólahátíð sem haldin verður dagana 11.-13. ágúst næstkomandi. Hólahátíð hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár en lengi vel fór Hólahátíð fram á einum sunnudegi um miðjan ágúst. Á afmælisári biskupsstólsins verður Hólahátíð glæsilegri en nokkru sinni fyrr og dagskrárliðir aldrei verið jafn margir og fjölbreyttir. Mikið verður lagt upp úr helgihaldi, hægt að velja úr þrennum heils dags pílagrímagöngum, auk göngu upp í Gvendarskál þar sem messað verður udnir berum himni við altari Guðmundar góða. Þráarhöllinni verður breytt í leikhús á föstudagskvöld, þar sem Karlakórinn Heimir ásamt leikurum fara yfir 900 ára sögu Hólabiskupa. Þetta er aðeins brot af því sem verður í boði en hér á eftir fylgir dagskrá hátíðarinnar í heild sinni. Það verður líf og fjör á Hólum dagana 11.-13. ágúst.
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 1/8 2006
Um næstu helgi, sem er eins og kunnungt er verslunarmannahelgi, sækir Húnavatnsprófastdæmi Hóla heim. Húnvetningar koma ekki tómhentir og bjóða upp á mjög spennandi dagskrá í tali og tónum kl.14 en fyrst verður hátíðarguðsþjónusta kl.11. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur á Skagaströnd þjónar fyrir altari en sr. Guðni Þór Ólafsson prófastur á Melstað prédikar. Organisti er Pálína Fanney Skúladóttir.
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 1/8 2006
Sunnudaginn 30. ágúst ætlar Skagafjarðarprófastdæmi að sjá um helgihald og menningardagskrá í tilefni af 900 ára afmæli Hólastaðar. Hátíðarmessa verður kl.11 þar sem prestar úr prófastdæminu þjóna fyrir altari og sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli prédikar.
Kl. 14 verður fjölbreytt dagskrá í dómkirkjunni með ramm skagfirsku menningarefni. Verið velkomin heim að Hólum til að njóta þess sem er á boðstólnum
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 27/7 2006
Á miðvikudaginn kemur, þann 26. júlí kl. 20, verður Skálholtskvartettinn með tónleika í Hóladómkirkju. Á efnisskránni verða m.a kvartettar í dúr og moll eftir W.A. Morzart. Að vanda er aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 23/7 2006
Laugardaginn 12. ágúst verða í tengslum við Hólahátíð gengnar pílagrímagöngur heim til Hóla úr þremur áttum. Gengnar verða gamlar þjóðleiðir úr Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði og úr Hörgárdal yfir Hjaltadalsheiði og einnig gömul biskupaleið frá Flugumýri að Hvammi. Þetta eru áhugaverðar, en jafnframt langar og á stundum erfiðar göngur. Göngumenn athugi að vera vel útbúnir og hafa með nesti. Tekið verður á móti pílagrímunum með helgistund í Dómkirkjunni. Sundlaugin verður opin og útigrill fyrir göngumenn og gesti, þar sem hægt er að kaupa mat gegn vægu verði. Nú er um að gera að taka fram skóna og feta í fótspor kynslóðanna og ganga heim að Hólum. Nánari upplýsingar um göngurnar er að finna hér að neðan.
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 22/7 2006
Heimsóknir prófastdæma Hólastiftis til Hóla standa nú yfir. Um næstu helgi er von á nágrönnum okkar handan Tröllaskaga úr Eyjafjarðarprófastdæmi.
Hátíðarmessa verður í Hóladómkirkju kl.11, þann 23. júlí.
Kl.14 verður Karlakór Eyjafjarðar með söngdagskrá í dómkirkjunni. Stjórnandi kórsins er Petra Pálsdóttir. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir boðnir hjartanlega velkomnir heim að Hólum.
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 19/7 2006
Föstudagskvöldið 21. júlí, mun ein af okkar þekktustu óperusöngkonum af yngri kynslóðinni, Þóra Einarsdóttir, halda tónleika í Hóladómkirkju og hefjast þeir kl.20. Með Þóru syngur eiginmaður hennar Björn Jónsson tenór og undirleikari þeirra er Helga Bryndís Magnúsdóttir. 
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 16/7 2006
Heimsóknir prófastdæmanna halda áfram. Sunnudaginn 16. júlí koma Þingeyingar heim til Hóla. Guðsþjónusta verður kl.11, sr. Jón Ármann Gíslason og sr. Örnólfur J. Ólafsson þjóna fyrir altari og sr. Sighvatur Karlsson sóknarprestur á Húsavík prédikar.
Kl.14 verður boðið til tónlistar dagskrár úr Þingeyjasýslu. Þar koma fram einsöngvararnir Aðalsteinn Júlíusson, Kristján Þ. Halldórsson og Kristveig Sigurðardóttir. Kór Snartarstaðakirkju syngur undir stjórn Björns Leifssonar og Val Vajaots leiðir tónlistarflutning úr Mývatnssveit.
sigridur.gunnarsdottir, 12/7 2006
Sunnudaginn 9. júlí verður messa í Hóladómkirkju kl. 11. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir prófastur Múlaprófastdæmis þjónar fyrir altari ásamt sr. Láru Oddsdóttur og Vigfús I. Ingvarsson prédikar. Organisti er Torvald Gjerde og kór af Héraði syngur.
Kl.14 Dagskrá af Héraði
Dr. Steinunn Kristjánsdóttir forleifafræðingur greinir frá uppgreftrinum á Skriðuklaustri og mun fjalla sérstaklega um hospitalið í klaustrinu.
Helga Sjöfn Hrólfsdóttir og Guðbjörg Aðalsteinsdóttir leika saman á fiðlu og flautu.
Kórsöngur og einsöngur undir stjórn Torvalds Gjerde.
sigridur.gunnarsdottir, 6/7 2006
Bókin Saga biskupsstólanna verður kynnt að Hólum í Hjaltadal næstkomandi þriðjudag 11. júlí. Óskar Guðmundsson, annar ritstjóra bókarinnar, kynnir verkið og svarar fyrirspurnum. Kynningin verður í Auðunarstofu og hefst kl. 20:00. Við kynninguna mun Marta Halldórsdóttir sópran syngja við undirleik Arnar Magnússonar, þar sem Örn leikur á langspil og symfón.
Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 5/7 2006