Hóladómkirkja

 

Frá Ríkíní þinginu

Örn Magnússon setur þingið

Jón Aðalsteinn býður Svanhildi Óskarsdóttur frá Árnastofnun velkomna í Auðunarstofu á föstudagskvöldið, en hún flutti fyrsta fyrirlesturinn; samantekt sína og Rósu Þorsteinsdóttur um heilagra meyja kvæði

Margrét Sigtryggsdóttir, 28/8 2011

Þriðja þing Ríkíní, félags um forna tónlist

Síðustu tónleikar sumarsins verða næstkomandi sunnudag kl. 14.  Þeir eru á vegum Ríkíní félagsins sem heldur sitt þriðja þing nú um helgina 26.-28. ágúst.  Fjöldi fræðimanna mun flytja fyrirlestra um helgar meyjar - og sungin verður messa lík þeim sem Guðbrandur biskup söng hér fyrir 400 árum.
Dagskráin í heild fer hér á eftir.

Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 25/8 2011

Fallegir minningartónleikar

Gerður Bolladóttir áður biskupsdóttir á Hólum söng af miklum innileik fyrir mágkonu sína Katrínu Kolku Jónsdóttur, áður skólastjóradóttur á Hólum.  Á efnisskránni voru íslensk þjóðlög í útsetningu Hildigunnar Rúnarsdóttur, Ferdinand Rauter og Snorra Sigfús Birgisson.  Með henni lék Victoria Tarevskaia á selló. Katrín Kolka lést úr krabbameini fyrr á þessu ári aðeins 29 ára að aldri.

Síðdegis í gær, laugardag, var minningarstund í kirkjunni sem séra Hildur Eir Bolladóttir gegndi stóru hlutverki.  Hún þjónaði einnig við sunnudagsmessuna í morgun.

Margrét Sigtryggsdóttir, 21/8 2011

“Nýr forngripur” í Hóladómkirkju

Legsteinn Halldóru Árnadóttur sem legið hefur óhreyfður í geymslu árum saman hefur nú fengið uppreisn æru.  Það var fyrir tilstilli Málfríðar Finnbogadóttur hjá Hólanefnd sem hann var færður til viðgerðar.  Honum voru gerð góð skil á Hólahátíð 2011 og hefur nú verið komið fyrir í forkirkjunni þar sem hægt er að skoða hann.

Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 17/8 2011

Að lokinni Hólahátíð

Það fer að hausta þegar Hólahátíð er lokið.  Búast má við næturfrostum, og haustrigning var í öllum sveitum í grennd við Hóla s.l. sunnudag.  Eins og svo oft áður naut þó staðurinn veðursældarinnar þennan dag og ekki fór að rigna fyrr en dagskrá lauk. Einstaklega gott veður var á laugardaginn og notuðu margir tækifærið og fóru í pílagrímagöngurnar.  Hátíðamessan var fjölsótt og sama má segja um samkomuna síðdegis.  Góður rómur var gerður að ræðunni, sem má lesa hér að neðan.

Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 17/8 2011

Fleiri myndir af hátíðinni


Jón Aðalsteinn setur hátíðina með opnun krossasýningarinnar.

Áheyrendur fylgjast vel með erindi Dr. Einars Sigurbjörnssonar

Margrét Sigtryggsdóttir, 16/8 2011

Hátíðarguðsþjónustan

Alli voru í sínu fínasta!  Séra Dalla predikaði. Hennar ræða fer hér á eftir.

Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 15/8 2011

Sól og blíða útivistardaginn

Vígslubiskup með krossinn sem á að reisa við altari Guðmundar góða.  Hann smíðaði Viðar Sverrisson, en Hólahátíð hófst í gær með afar fróðlegu erindi Dr. Einars Sigurbjörnssonar í tilefni af opnun glæsilegrar sýningar á krossum, handunnum af Jóni Geir Ágústssyni.  Hann stendur hér fyrir utan Auðunarstofu við eitt af sínum listaverkum. Nokkrir smærri krossanna eru gerðir úr steini úr Hólabyrðu

Táknmál krossins
Erindi Einars Sigurbjörnssonar má lesa hér að neðan. Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 13/8 2011

Hólahátíð hefst á föstudaginn

Smávægilegar breytingar hafa orðið á áður auglýstri dagskrá.  Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í pílagrímagöngunum yfir Heljardalsheiði og frá Flugumýri.  Hér má lesa nánari lýsingu á göngunum.

Lesa áfram …

Margrét Sigtryggsdóttir, 8/8 2011

Hólahátíð nálgast

Hólahátíð hefst eins og undanfarin ár á föstudagskvöldi og stendur fram á sunnudag.  Margt verður til skemmtunar og fróðleiks og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi.  Dagskráin er birt hér til hliðar.

Margrét Sigtryggsdóttir, 27/7 2011

VETRARDAGSKRÁ
frá 10. september 2011

Kirkjan er höfð læst þegar ekkert helgihald fer fram en kirkjuvörður sýnir kirkjuna þegar þess er óskað. Síminn er 895 9850.

Safnaðarmessur verða u.þ.b. mánaðarlega og verða auglýstar sérstaklega.

Hina sunnudagana eru kvöldbænir kl. 18:00 - 18:15 þar sem fer fram víxllestur og bæn.
Hringt er til tíða u.þ.b. 15 mínútum fyrir tímann.
Fyrirbænaefnum má koma til víglsubiskups í síma 453 6300 og í tölvupósti á biskup@holar.is eða til kirkjuvarðar í 895 9850 eða á laufgud@mail.holar.is

Kvöldbænireru einnig á miðvikudögum með sama hætti.

 

Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS