Hóladómkirkja

 

Tónleikar Laufeyjar og Páls

Páll Eyjólfsson gítarleikari og Laufey Siguðardóttir fiðluleikari hafa um árabil komið heim að Hólum og leikið saman á tónleikum í Hóladómkirkju. Sunnudaginn 2. júlí, kl.14 munu þau Laufey og Páll halda sína árlegu tónleika. Efnisskrána er sérstök ánægja að kynna því á henni er verk, sérstaklega samið í tilefni 900 ára afmælis Hólastaðar, af Tryggva Baldvinssyni.

Unnendur sígildrar tónlistar ættu ekki að láta þennan listviðburð framhjá sér fara. Aðgangur er ókeypis, eins og jafnan að tónleikum í Hóladómkirkju.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 25/6 2006

Kaþólskur dagur 25. júní

Sunnudagurinn 25. júní er kaþólskur dagur á Hólum, tileinknaður Jóni helga Ögmundarsyni sem vígðist fyrstur biskupa til Hóla, árið 1106. Dagskráin hefst með guðsþjónustu kl.11 og alþjóðleg ráðstefna um dýrlinga kl. 14.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 22/6 2006

Guðsþjónusta 18. júní, kl.11

Sunnudaginn 18. júní er guðsþjónusta kl.11. Það eru nágrannar okkar úr Svarfaðardal sem koma heim að Hólum og sjá um helgihaldið.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 16/6 2006

Guðsþjónusta sunnudaginn 11. júní

Sunnudaginn 11. júní verður guðsþjónusta í Hóladómkirkju og hefst kl.11. Sr. Gísli Gunnarsson prestur í Glaumbæ prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti verður Jóhann Bjarnason.

sigridur.gunnarsdottir, 8/6 2006

Sýning um sögu Hólabiskupa

Í dag, 8.júní, var opnuð sýning í íþróttasal Hólaskóla þar sem rakin er saga Hólabiskupa frá upphafi.Guðbrandur Þorláksson biskup 1571-1627

Sýningin verður opin gestum í allt sumar.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 8/6 2006

Hátíðarmessa á hvítasunnu

Hátíðarmessa verður í Hóladómkirkju á hvítasunnudag, 4. júní, kl. 14.

Sr. Gunnar Jóhannesson prédikar og þjónar fyrir altari, organisti verður Jóhann Bjarnason og kirkjukórinn leiðir söng. Fjölmennum til messu í góða veðrinu.

sigridur.gunnarsdottir, 2/6 2006

Tónlistarveisla á afmælisári

Í sumar verður mikið um að vera og von á mörgum góðum gestum heim að Hólum. Sérstaklega ánægjulegt að kynna nokkra af þeim glæsilegu tónlistarmönnum og söngkonum sem halda tónleika í dómkirkjunni en hér verða á ferð nokkrir af okkar snjöllustu listamönnum. Aðgangur er ókeypis að öllum tónleikum í Hóladómkirkju.

Gerður Bolladóttir sópran, 7. júlí. Gerður er Skagfirðingum að góðu kunn. Með henni verða í för Hlín Erlendsdóttir fiðluleikari, Sophie Schoonjans hörpuleikari og munu þær flytja íslensk þjóðlög í nýjum búningi. Þetta eru útgáfutónleikar.

Norskur strengjakvartett, 14.7, kl.20

Þóra Einarsdóttir sópran, 21. júlí

Skálholtskvartettinn 26. júlí. Kvartettinn skipa Jaap Schröder fiðluleikari, Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Á efnisskránni eru m.a kvartettar í dúr og moll eftir W.A. Mozart.

Camerarctica 17. ágúst

Eydís Fransdóttir og Musica ad Gudium. 20.ágúst, kl.20

sigridur.gunnarsdottir, 29/5 2006

Fermingarmessa í Hóladómkirkju

Sunnudaginn 28. maí verður fermingarmessa í Hóladómkirkju, kl.11. Sr. Gunnar Jóhannesson sér um þjónustuna, Jóhann Bjarnason verður við orgelið og Hóladómkórinn leiðir sönginn.

Fermdir verða þrír piltar, allir búsettir að Hólum:

Eyþór Eysteinsson, Jóhann Sigurður Jóhannsson og Ólafur Helgi Thorarensen.

sigridur.gunnarsdottir, 24/5 2006

Safnaðarmessa sunnudaginn 14.maí

Næstkomandi sunnudag, þann 14. maí verður almenn safnaðarmessa í Hóladómkirkju og hefst hún kl.11. Altarisganga fer fram við messuna. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari og prédikar en organisti er Rögnvaldur Valbergsson og félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng.

sigridur.gunnarsdottir, 12/5 2006

Höfuðból Norðurland - Hólastaður og Íslandssagan í dag

Áður auglýstum fyrirlestri Jóns Þ. Þór, Höfuðból Norðurlands - Hólastaður og Íslandssagan, hefur veirð flýtt um einn dag, fyrirlesturinn verður í dag 3. maí, kl. 17 í Auðunarstofu.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Vonumst enn sem fyrr til að sjá sem flesta.

sigridur.gunnarsdottir, 3/5 2006

VETRARDAGSKRÁ
frá 10. september 2011

Kirkjan er höfð læst þegar ekkert helgihald fer fram en kirkjuvörður sýnir kirkjuna þegar þess er óskað. Síminn er 895 9850.

Safnaðarmessur verða u.þ.b. mánaðarlega og verða auglýstar sérstaklega.

Hina sunnudagana eru kvöldbænir kl. 18:00 - 18:15 þar sem fer fram víxllestur og bæn.
Hringt er til tíða u.þ.b. 15 mínútum fyrir tímann.
Fyrirbænaefnum má koma til víglsubiskups í síma 453 6300 og í tölvupósti á biskup@holar.is eða til kirkjuvarðar í 895 9850 eða á laufgud@mail.holar.is

Kvöldbænireru einnig á miðvikudögum með sama hætti.

 

Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS