Hóladómkirkja

 

Fermingarmessa í Hóladómkirkju

Sunnudaginn 28. maí verður fermingarmessa í Hóladómkirkju, kl.11. Sr. Gunnar Jóhannesson sér um þjónustuna, Jóhann Bjarnason verður við orgelið og Hóladómkórinn leiðir sönginn.

Fermdir verða þrír piltar, allir búsettir að Hólum:

Eyþór Eysteinsson, Jóhann Sigurður Jóhannsson og Ólafur Helgi Thorarensen.

sigridur.gunnarsdottir, 24/5 2006

Safnaðarmessa sunnudaginn 14.maí

Næstkomandi sunnudag, þann 14. maí verður almenn safnaðarmessa í Hóladómkirkju og hefst hún kl.11. Altarisganga fer fram við messuna. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari og prédikar en organisti er Rögnvaldur Valbergsson og félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng.

sigridur.gunnarsdottir, 12/5 2006

Höfuðból Norðurland - Hólastaður og Íslandssagan í dag

Áður auglýstum fyrirlestri Jóns Þ. Þór, Höfuðból Norðurlands - Hólastaður og Íslandssagan, hefur veirð flýtt um einn dag, fyrirlesturinn verður í dag 3. maí, kl. 17 í Auðunarstofu.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Vonumst enn sem fyrr til að sjá sem flesta.

sigridur.gunnarsdottir, 3/5 2006

Höfuðból Norðurlands - Hólastaður og Íslandssagan

Fimmtudaginn 4. maí verður áhugaverður fyrirlestur Jóns Þ. Þór í Auðunarstofu sem ber heitið Höfuðból Norðurlands - Hólastaður og Íslandssagan. Erindið er haldið í tilefni afmælisárisins á Hólum og er á vegum Guðbrandsstofnunar og Ósýnilega félagsins.

Fyrirlesturinn hefst kl. 17 , aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Jón Þ. Þór er Fil.dr. í sagnfræði og sjálfstætt starfandi fræðimaður. Hann hefur ritað fræðirit, ævisögur og fengist við þýðingar. Hann kemur að ritun sögu biskupstólanna Hóla og Skálholts.Auðunarstofa á Hólum

sigridur.gunnarsdottir, 1/5 2006

Skólasaga - skólastefna að Hólum, 28.-30. apríl

Hólastaður fagnar 900 ára afmæli en biskupstóll var fyrst settur á Hólum 1106. Þá setti Jón helgi Ögmundsson jafnframt á stofn skóla og lengst af hefur Hólastaður verið talinn eitt af höfuðvígum menntunar og fræða í landinu. Í tilefni afmælisins verður haldin ráðstefna um menntamál að Hólum, helgina 28.-30. apríl næstkomandi. Hér má lesa dagskrá skólastefnunnar en að henni koma stjórnendur flestra menntastofnana á framhalds- og háskólastigi á Íslandi, auk erlendra gesta.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 19/4 2006

Hátíðarguðsþjónusta á páskadag

Á páskadag, 16. apríl verður hátíðarguðsþjónusta í Hóladómkirkju, kl. 14. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Jóhann Már Jóhannsson tenór syngur einsöng og kór Hóladómkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Jóhann Bjarnason.

sigridur.gunnarsdottir, 7/4 2006

Kvöldsamkoma föstudaginn langa

Að kveldi 14. apríl, föstudagsins langa, verður samkoma í tali og tónum í Hóladómkirkju og hefst kl.21. Umsjón með samverunni hafa Málfríður Finnbogadóttir og Jóhann Bjarnason sem verður við orgelið. Verið hjartanlega velkomin til kirkjunnar.Róðukrossinn forn og skírnarsár Hóladómkirkju

sigridur.gunnarsdottir, 7/4 2006

Opnun um bænadaga og páska

Nú er mikið vetrarríki á Hólum þó að sólarganginn lengi með degi hverjum og gefi fyrirheit um betri tíð. Á næsta leiti eru páskarnir, stærstu hátíð kirkjunnar.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 2/4 2006

Söngur í sálunum ómar - ferðasaga Hóladómkórsins

Þann 4. mars s.l. lagði kór Hóladómkirkju land undir fót og heimsótti Skálholtskórinn. Suðurland skartaði Jón A. Baldvinsson í prédikunarstól Skálholtskirkjusínu fegursta í heiðskíru veðri og dáðust Skagfirðingar mjög að víðsýninu af Skálholtshlaði.

Björg Baldursdóttir tók saman litla ferðasögu.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 16/3 2006

Safnaðarmessa

Þann 12.mars, kl. 14 verður almenn safnaðarmessa í Hóladómkirkju. Jón A. Baldvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Jóhann Bjarnason og Hóladómkórinn leiðir sönginn.

Nú er fastan, sem kristið fólk hefur löngum notað til íhugunar og iðrunar. Hittumst á föstu og eigum samfélag í kirkjunni.

sigridur.gunnarsdottir, 8/3 2006

VETRARDAGSKRÁ
frá 10. september 2011

Kirkjan er höfð læst þegar ekkert helgihald fer fram en kirkjuvörður sýnir kirkjuna þegar þess er óskað. Síminn er 895 9850.

Safnaðarmessur verða u.þ.b. mánaðarlega og verða auglýstar sérstaklega.

Hina sunnudagana eru kvöldbænir kl. 18:00 - 18:15 þar sem fer fram víxllestur og bæn.
Hringt er til tíða u.þ.b. 15 mínútum fyrir tímann.
Fyrirbænaefnum má koma til víglsubiskups í síma 453 6300 og í tölvupósti á biskup@holar.is eða til kirkjuvarðar í 895 9850 eða á laufgud@mail.holar.is

Kvöldbænireru einnig á miðvikudögum með sama hætti.

 

Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS