Hóladómkirkja

 

Nýr vefur afmælisársins

Hólastaður stendur á tímamótum og fagnar 900 ára afmæli sínu á þessu ári. Afmælisins verður minnst með ýmsum hætti. Fjölmargir, leikir sem lærðir, úr öllu Hólastifti munu koma að hátíðarhöldunum og leggja hönd á plóg. Í upphafi árs var opnaður vefur, sérstaklega tileinkaður afmæli staðarins og þar verður að finna upplýsingar um hinar fjölmörgu uppákomur sem í boði verða. Hápunktur hátíðahaldanna verður Hólahátíðin, helgina 11.-13. ágúst en hún verður veglegri en nokkru sinni fyrr. Afmælisvefinn er að finna undir slóðinnni: http://www.holar.is/~900/

sigridur.gunnarsdottir, 24/1 2006

Ár mikilla minninga

Við áramót birti Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup eftirfarandi pistil á trúmálavef þjóðkirkjunnar: http://www.tru.is/pistlar/2005/12/ar-mikilla-minninga

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 3/1 2006

Þakkar- og bænastund á gamlársdag

Á gamlársdag verður þakkar- og bænastund í Hóladómkirkju kl. 17.30. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup leiðir stundina.

sigridur.gunnarsdottir, 27/12 2005

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson valinn sóknarprestur á Skagaströnd

Valnefnd í Skagastrandarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi ákvað á fundi sínum þann 21. desember síðastsliðinn að leggja til að sr. Fjölni Ásbjörnssyni verði veitt embætti sóknarprests í Skagastrandaprestakalli. Umsóknarfrestur rann út þann 8. desember síðastliðinn. Fimm umsækjendur voru um embættið.

Sr. Magnús Magnússon sem þjónað hefur Skagastrandarprestakalli s.l. fimm ár, færir sig um set og tekur við embætti sóknarprests í Ólafsvík.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 27/12 2005

Hátíðarguðsþjónusta á aðfangadagskvöld

Hátíðarguðsþjónusta verður á aðfangadagskvöld í Hóladómkirkju kl.23.

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup þjónar fyrir altari og prédikar. Hóladómkórinn syngur við undirleik Jóhanns Bjarnasonar.

Starfsfólk Hóladómkirkju sendir sínar bestu óskir um gleðileg jól til sjávar og sveita!

sigridur.gunnarsdottir, 23/12 2005

Skagfirski kammerkórinn í Hóladómkirkju

Jólatónleikar Skagfirska kammerkórsins verða þriðjudagskvöldið 20.desember kl. 20:30. Á efnisskránni eru leikandi létt og hátíðleg jólalög sem koma okkur í rétta stemningu, segir í auglýsingu frá kórnum.

Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir að Skagfirski kammerkórinn haldi jólatónleika skömmu fyrir jól í Hóladómkirkju.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 18/12 2005

Aðventukvöld Hóladómkórsins

Aðventukvöld Hóladómkórsins verður fimmtudaginn 15. desember, kl.21. Á efnisskránni er sígild jóla- og aðventutónlist, innlend og erlend. Hóladómkórinn er sameiginlegur kirkjukór Hóla- og Viðvíkurkirkju, stjórnandi kórsins er Jóhann Bjarnason organisti. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur leiðir stundina.

Fólk er hvatt til að taka kvöldið frá, líta upp úr jólaönnum og njóta aðventunnar.

sigridur.gunnarsdottir, 12/12 2005

Aðventumessa 11.desember, kl.14

Aðventan er gengin í garð og líða fer að jólum. Aðventumessa verður þann 11. desember, kl.14 í Hóladómkirkju. Sr. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur þjónar fyrir altari og börn úr leik- og grunnskóla taka virkan þátt. Að messu lokinni verður kirkjugestum boðið upp á kakó, kaffi og þjóðlegt bakkelsi í húskynnum Grunnskólans.

Aðventukvöld kirkjukórsins verður 15. desember og nánar auglýst síðar.

sigridur.gunnarsdottir, 2/12 2005

Mannabreytingar í sóknarnefnd Hólasóknar

Á sóknarnefndarfundi 29. nóvember s.l. urðu breytingar á skipan sóknarnefndar. Sigríður Gunnarsdóttir lét af formennsku í stjórninni en hún er flutt búferlum á Sauðárkrók. Sigurbjörg Ólafsdóttir fyrsti varamaður tekur sæti í nefndinni. Ný stjórn skipti með sér verkum, Björg Baldursdóttir ritari og varaformaður tók við embætti formanns og mun hún einnig taka sæti í Hólanefnd. Sigurbjörg mun gegna starfi ritara en Hörður Jónsson verður áfram gjaldkeri.

Fráfarandi formanni voru færðar þakkir fyrir unnin störf og óskar nýrri sóknarnefnd allrar blessunar í starfi.

sigridur.gunnarsdottir, 2/12 2005

Taize messa 20. nóvember

Taize messa verður í Hóladómkirkju að kvöldi sunnudagins 20. nóvember næstkomandi, kl.21.

Kór Hóladómkirkju leiðir sönginn við undirleik Jóhanns Bjarnasonar organista. Krakkar úr 10-12 ára starfinu og fermingarbörn aðstoða við messugjörðina.

Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari og flytur hugvekju. Allir nær og fjær eru hjartanlega velkomnir og sérstaklega er stúdentum við Hólaskóla boðið að koma til kirkju og taka þátt í stundinni.

Lesa áfram …

sigridur.gunnarsdottir, 18/11 2005

VETRARDAGSKRÁ
frá 10. september 2011

Kirkjan er höfð læst þegar ekkert helgihald fer fram en kirkjuvörður sýnir kirkjuna þegar þess er óskað. Síminn er 895 9850.

Safnaðarmessur verða u.þ.b. mánaðarlega og verða auglýstar sérstaklega.

Hina sunnudagana eru kvöldbænir kl. 18:00 - 18:15 þar sem fer fram víxllestur og bæn.
Hringt er til tíða u.þ.b. 15 mínútum fyrir tímann.
Fyrirbænaefnum má koma til víglsubiskups í síma 453 6300 og í tölvupósti á biskup@holar.is eða til kirkjuvarðar í 895 9850 eða á laufgud@mail.holar.is

Kvöldbænireru einnig á miðvikudögum með sama hætti.

 

Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS