S.l. sunnudag héldu heiðurshjónin Guðrún Gunnarsdóttir söngkona og Valgeir Skagfjörð píanóleikari og lagasmiður tónleika í Hóladómkirkju. Um hundrað manns komu og hlýddu á.
http://www.kirkjan.is/holar/myndir/gudrung3.JPG

Lesa áfram …
sigridur.gunnarsdottir, 25/7 2005
Hólahátíð verður haldin dagana 12. 14. ágúst.
Heiðursgestur er frú Vigdís Finnbogadóttir
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 20/7 2005
Tvennir tónleikar voru haldnir á vegum Hólanefndar og Guðbrandsstofnunar um síðustu helgi. Hinir góðkunnu blásarar Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Ármann Helgason klarinettleikari léku bæði í kirkjunni og í Auðunarstofu sem hentar mjög vel til tónleikahalds.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 19/7 2005
Kirkjan ómaði af söng s.l. sunnudag. Það var kirkjukór Sauðárkrókskirkju sem leiddi sönginn í guðsþjónustunni. Hún var að þessu sinni í höndum sr. Guðbjargar Jóhannesdóttur. Fjölmenni var og eitt barn úr sveitinni borið til skírnar, sem jók enn á helgi stundarinnar.
Margrét Sigtryggsdóttir, 19/7 2005
Nær 40 manns úr Seljasókn voru í fylgdarliði sr. Bolla Péturs er hann messaði í Hóladómkirkju 10. júlí s.l.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 19/7 2005
Guðsþjónustan kl 11 er í umsjá sr Guðbjargar Jóhannesdóttur sóknarprests á Sauðárkróki. Með henni í för verða félagar úr kirkjukór Sauðárkrókskirkju sem leiða safnaðarsönginn.
Tónleikarnir þennan dag eru helgaðir léttri klassískri tónlist innlendri sem erlendri. Eydís Franzdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir og Ármann Helgason leika saman á óbó, flautu og klarinett. Þeir hefjast kl 14 og er aðgangur ókeypis.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 11/7 2005
Sunnudaginn 10. júlí eigum við von á heimsókn úr Reykjavík. Þá verða á ferð prestur og kór Seljakirkju og munu þau syngja messu auk þess að vera með tónleika í kirkjunni síðdegis.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 7/7 2005
Menningarmálaráðherra Noregs hafði stutta viðdvöl á Hólastað ásamt fylgdarliði sínu mánudaginn 4. júlí á leið sinni um Norðurland. Valgerd Svarstad Haugland, sem var hér í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, óskaði sérstaklega eftir að fá að skoða Auðunarstofu, sem á ættir sínar að rekja til Noregs.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 6/7 2005
Þessi ljóðlína sr Matthíasar áttu vel við mánudagskvöldið 4. júlí. Færri komust að en vildu þegar systkinin Ellen og Kristján Kristjánsbörn sungu og léku í Hóladómkirkju.
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 6/7 2005
Góðir grannar sáu um helgihaldið í Hóladómkirkju sunnudaginn 3. júlí. Sr Gísli Gunnarsson kom ásamt fríðu föruneyti, félögum úr kirkjukórum Glaumbæjar-og Reynisstaðarsókna og Víðimýrarsóknar sem sungu undir stjórn organistans Stefáns Gíslasonar
Margrét Sigtryggsdóttir, 6/7 2005