Siðgæði, samskipti og sálgæsla var yfirskrift ráðstefnu Prestafélags hins forna Hólastiftis sem haldin var á hólum 29. - 31. maí. Þátttakendum á þessari árlegu ráðstefnu fer stöðugt fjölgandi. Hún byggist á tíðagjörð, fyrirlestrum og ekki síst samveru prestanna.
Fyrirlesarar í ár voru Dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor, Kristján Már Magnússon sálfræðingur, sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir og sr. Gunnlaugur Garðarsson sem á veg og vanda af skipulagningunni. Hér sést hann ásamt hluta hópsins við morguntíð í kirkjunni.

Sr. Kristinn, sr. Þorgrímur, sr. Gunnlaugur sr. Jón
Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 31/5 2011
Nú líður víðast hvar að lokum barna- og unglingastarfs í söfnuðum kirkjunnar enda sumar í nánd. Að því tilefni er gjarnan lagt meira í síðustu samveru starfsins en venjulega.
Hér á Hólum höfum við mikinn áhuga á því að bjóða staðinn og Hóladómkirkju fram sem vettvang fyrir uppskeruhátíð eða vorhátíð barna- og unglingastarfsins. Með þessu bréfi viljum við bjóða áhugasömum hópum að láta vita af sér.
Hugmyndin er að hópur sunnudagaskólabarna og/eða hópur barna í tíu til tólf ára starfi (eða börn á öðrum aldri eftir atvikum) sæki Hóla heim ásamt fylgdarliði (presti, leiðtogum, foreldrum) og geri sér glaðan dag.
Sr. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur á Hólum hefur umsjón með og stýrir dagskrá dagsins í samráði við forsvarsmenn viðkomandi hópa.
Dagskráin samanstendur af fræðslu og leik sem helgast af veðri og tíma. Haldin verður helgistund/söngstund í Hóladómkirkju sniðin að aldri barnanna. Farið verður í ýmsa leiki og slegið á létta strengi. Hólastaður býður upp á fallegt umhverfi sem nýta má á skemmtilegan hátt, m.a. skóginn og Auðunarstofu. Gert er ráð fyrir sameiginlegum matartíma – í góðu veðri má grilla. Þá er hægt að ljúka samverunni á ferð í sundlaugina á Hólum.
Gert er ráð fyrir því að hópar leggi með sér mat til ferðarinnar og standi straum af ferðakostnaði.
Þeir sem eru áhugasamir eða óska eftir frekari upplýsingum geta snúið sér til sr. Gunnars Jóhannessonar í síma 892 9115.
Verið hjartanlega velkomin heim að Hólum.
Margrét Sigtryggsdóttir, 18/5 2011
Svo skemmtilega vill til að organistarnir við dómkirkjurnar á Hólum og í
Skálholti eru bræður. Það eru þeir Jóhann Bjarnason sem hefur þjónað Hólum í mörg ár og Jón Bjarnason sem tók við embættinu í Skálholti á síðasta ári.
Nú um helgina efna þeir til sameiginlegs kórsöngs syðra. Messað verður í Skálolti sunnudaginn 10. apríl kl. 14:00. Sr. Jón Aðalsteinn á Hólum predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarprestinum í Skálholti sr. Agli Hallgrímssyni.
Margrét Sigtryggsdóttir, 8/4 2011
Skírdagur 21. apríl kl. 14:00 Fermingarmessa
Fermd verða:
Nökkvi Már Víðsson, Bjarni Dagur Jóhannsson, Anna Guðrún Guðjónsdóttir, Heiðdís Fríða Agnarsdóttir, Lovísa Helga Jónsdóttir, Guðný Vaka Björnsdóttir.
Föstudagurinn langi 22. apríl kl. 18:00 Helgistund með lestri úr passíusálmunum. Vígsdubiskup hefur umsjón með stundinni. Grunnskólabörn og fleiri aðstoða.
Páskadagur 24. apríl kl. 14:00 Hátíðarmessa. Vígslubiskup messar.
Kirkjukórinn syngur. Stjórnandi og organisti er Jóhann Bjarnason.
Margrét Sigtryggsdóttir, 8/4 2011

Þetta var yfirskrift erindis sem Vilhjálmur Árnason flutti í Auðunarstofu 16. mars á degi Guðmundar góða. Hann er einn höfundur 8. heftis Rannsóknarskýrslunnar en það hefti fjallar um siðferði og starfshætti í tengslum við fall íslensku bankanna 2008. Mjög líflegar umræður urðu um efnið að erindi loknu og er mikill fengur að fá svo góðan gest heim að Hólum.
Jón Þorsteinn Reynisson harmóníkuleikari lék af mikilli snilld eigin útsetningar af nokkrum klassískum verkum fyrir gesti.
Einnig fór fram árleg úthlutun úr Áheitasjóði Guðmundar góða. Þuríður Harpa Sigurðardóttir hlaut hann þetta árið fyrir hugrekki og fordæmi sem hún sýnir öðrum með dugnaði sínum. Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 17/3 2011
Hin árlega samkona tileinkuð Guðmundi biskupi góða verður haldin í Auðunarstofu miðvikudaginn 16. mars kl. 16. Að samkomunni standa Hóladómkirkja, Guðbrandsstofnun og Menntaskólinn á Akureyri. Samstarf þessara aðila hófst árið 2006 í tengslum við 900 ára afmæli Hólastaðar og byggir á eflingu fræðslu og umræðu um siðfræði.
Þar mun Vilhjálmur Árnason prófessor flytja erindi sem hann nefnir
“Er lýðræði lausnarorð eða hluti vandans? Hugleiðing um íslenskt lýðræði”.
Vilhjálmur er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og var formaður vinnuhóps um siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis 2009-2010.
Tónlist er í höndum Jóns Þorsteins Reynissonar harmóníkuleikara, og vígslubiskup mun afhenda styrk úr Áheitasjóði Guðmundar góða. Lesa áfram …
Margrét Sigtryggsdóttir, 15/3 2011
Skagfirski kammerkórinn gladdi okkur með söng sínum á sunnudagskvöldið - 19. desember. Sr. Jón Aðalsteinn var kynnir eins og undanfarin ár. Skemmtilegt innlegg var sönghléi. Sjá frekar á vef Hólaskóla.
Margrét Sigtryggsdóttir, 21/12 2010

Ljúf og hátíðleg stemning var á aðventukvöldi kirkjukórsins fimmtudaginn 16. des.
Sr. Gunnar las ritningarlestra á milli jólalaga kórsins og Sverrir Magnússon í Ási rifjaði upp fyrstu heimsókn sína að Hólum og flutti hugvekju sem hitti margan í hjartastað.
Margrét Sigtryggsdóttir, 17/12 2010
Við sjáum hér 2 svipmyndir frá aðventuhátíð barnanna 12.12. Jólaguðspjallið var lesið og leikið, kirkjukórinn söng nokkur lög og í lokin léku 4 drengir með orgelinu á blásturshljóðfærin sín.


Margrét Sigtryggsdóttir, 17/12 2010

Fjölskyldumessan þar sem grunnskólabörnin taka þátt með helgileik og söng verður n.k. sunnudag 12. desember kl. 15. Kirkjukaffi í Grunnskólanum í boði sóknarnefndar að lokinni athöfn.
Fimmtudaginn 16. kl. 20:30 verður aðventukvöld kirkjukórsins. Að þessu sinni mun Sverrir Magnússon í Efra-Ási flytja hugvekju.
Skagfirski kammerkórinn verður með tónleika í kirkjunni að kvöldi 4. sunnudags í aðventu kl. 20:30.
Á aðfangadagskvöld kl. 23 verður náttsöngur með stuttri hugleiðingu.
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag kl. 14 og á gamlársdag þakkargjörð kl. 17:30.
Margrét Sigtryggsdóttir, 7/12 2010