Ísafjarðarkirkja

 

Dagskrá vikunnar

Allar messur eru auglýstar á forsíðunni og í auglýsingakössum Ísafjarðarkirkju. Þá er fréttablaði kirkjunnar, Akrinum, dreift mánaðarlega í öll hús á Ísafirði og í Hnífsdal.

Sunnudagar

Við messum flesta sunnudaga kl. 11:00 í Ísafjarðarkirkju. Í Hnífsdalskapellu er messað á jólum, hvítasunnu og sjómannadegi. Allar messur eru auglýstar á heimasíðu Ísafjarðarkirkju og í auglýsingakössum kirkjunnar.

Mánudagar

Þriðjudagar

Á þriðjudögum milli kl. 14 og 16 heimsækja prestarnir Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði, ræða þar við sjúklinga og eru með helgistund kl. 16 í kapellunni.
Fundir hjá æskulýðsfélagi Ísafjarðarkirkju er í safnaðarheimilinu á þriðjudagskvöldum kl. 20:00.

Miðvikudagar

Samverur fyrir foreldra ungra barna eru í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju frá kl. 10:30 til hádegis.
Í Hnífsdalskapellu er opið hús frá kl. 10:30 til hádegis.

Fimmtudagar

Kór Ísafjarðarkirkju er með æfingar á fimmtudagskvöldum kl. 20:00.
Organisti er Hulda Bragadóttir.

Föstudagar

Á föstudögum kl. 10:30 er presturinn með húslestur fyrir eldri borgara. Lestarnir eru í Naustinu, félagsaðstöðu eldri borgara á Hlíf II.

Laugardagar

Skírnir, hjónavígslur og útfarir eru gjarnan á laugardögum í Ísafjarðarkirkju eða Hnífsdalskapellu.

Ísafjarðarkirkja er opin daglega frá kl. 10 til 16. Sóknarprestur er sr. Magnús Erlingsson. Sími prests er 456-3171.

Kirkjuþjónn er Elín Halldóra Friðriksdóttir og grafari er Jón Halldórsson. Sími 456-3560.

Fimmtudagur

Viðtalstími prests er milli 11 og 12. Skrifstofan er uppi á 2. hæð safnaðarheimilisins, gengið inn frá Sólgötu. Síminn er 456-3171.
Kirkjukórsæfing kl. 20:00.

Dagskrá ...