Á hvítasunnudag, 27. maí kl. 11:00 er fermingarmessa í Hnífsdalskapellu. Þá fermast fimm ungmenni. Það eru þau: Aðalbjörn Jóhannsson, Bakkavegi 4. Einar Óli Guðmundsson, Skólavegi 11. Gabríel Hólm Davíðsson. Karlotta María Þrastardóttir, Strandgötu 7a. Magðalena Jónasdóttir, Bakkavegi 39.
Á hvítasunnudag, 27. maí kl. 14:00 er fermingarmessa í Ísafjarðarkirkju. Þá fermast ellefu ungmenni. Það eru þau: Aldís Huld Höskuldsdóttir, Góuholti 7. Ágústa Rós Róbertsdóttir, Urðarvegi 26. Dagur Benediktsson, Fífutungu 8. Hafdís Haraldsdóttir, Engjavegi 22. Halldór Ágúst Hlynsson, Pollgötu 4. Haukur Jörundur Hálfdánarson, Tangagötu 30. Helga Þórdís Björnsdóttir, Skógarbraut 3. Jóhanna María Steinþórsdóttir, Móholti 5. Jón Svavar Gunnarsson, Mjallargötu 1. Julo Thor Rafnsson, Pólgötu 8. Viktor Júlíusson, Skipagötu 4.
Magnús Erlingsson, 24/5 2012
Á hvítasunnudag kl. 15:30 verður helgistund á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Helgistundin verður í salnum á öldrunardeildinni. Hulda leikur á orgelið en sóknarpresturinn, sr. Magnús fer með guðsorðið. Það eru allir velkomnir enda er þessi helgistund á heimsóknartíma.
Magnús Erlingsson, 24/5 2012
Laugardaginn 26. maí kl. 14:00 verður Guðmundur Sölvason jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju.
Magnús Erlingsson, 23/5 2012
Það verða tvær fermingarmessur á hvítasunnudag. Daginn áður, laugardaginn 26. maí verður haldinn sérstök æfing með fermingarbörnunum, þar sem farið verður yfir athöfnina lið fyrir lið. Fermingarbörn í Hnífsdal eru beðin um að mæta á æfingu í Hnífsdalskapellu kl. 11:00 á laugardag. Fermingarbörn á Ísafirði eru beðin um að mæta á æfingu í Ísafjarðarkirkju kl. 17:00 á laugardag. Mikilvægt er að allir mæti.
Magnús Erlingsson, 21/5 2012
Á svæðinu frá Þingeyri til Bolungarvíkur skiptast prestarnir á að vera á bakvakt um kvöld, nætur og helgar. Þurfi fólk fyrirvaralítið að ná í prest á þessum tímum þá hringir það í númerið 856-1684 og þá svarar sá prestur, sem er á vaktinni.
Magnús Erlingsson, 17/5 2012