Ísafjarðarkirkja

 

Messa í Ísafjarðarkirkju

Biblíudagurinn er sunnudaginn 12. febrúar og af því tilefni verður guðsþjónusta í Ísafjarðarkirkju klukkan ellefu (kl. 11:00).  Kór Ísafjarðarkirkju syngur við undirleik Huldu Bragadóttur organista.  Sóknarpresturinn predikar.  Allir velkomnir.

Magnús Erlingsson, 8/2 2012

Hver verður næsti biskup?

Nokkrir prestar hafa boðið sem fram til biskups.  Meðal annarra hefur prófastur Vestfirðinga, sr. Agnes M. Sigurðardóttir stigið fram og gefið kost á sér.  Fróðlegt verður að fylgjast með kosningunni en kosningarrétt hafa allir prestar landsins og formenn sóknarnefnda.  Að öllum líkindum verður kosið í marsmánuði.  Fái enginn frambjóðandi hreinan meirihluta þá verður kosið milli tveggja efstu og er líklegt að seinni umferðin yrði eftir páska.  Stefnt er að því að vígja nýjan biskup á Jónsmessu.

Reykvíkingar virðist margir hverjir uppteknir af því, sem þeir nefna ójafnvægi atkvæða við biskupskjör.  Er þá átt við að í Reykjavík eru fáar sóknir en afar fjölmennar en úti á landi eru hins vegar margar sóknir og fámennar.  Þannig heitir það ójafnvægi að prestur og sóknarnefndarformaður á Vestförðum hafi sama atkvæðisvægi og prestur í Reykjavík eða sóknarnefndarformaður í höfuðstaðnum.  Viðast fylgjendur þessa sjónarmiðs vera þeirrar skoðunar að réttast væri að atkvæði höfuðborgarbúans vegi margfalt á við atkvæði landsbyggðarmannsins vegna þess að það búi svo miklu fleiri í Reykjavíkursókninni.

Nú er það reyndar svo að við biskupskjör þá er landið eitt kjördæmi og hver kjósandi hefur eitt atkvæði.  Kjósendur eða kjörmenn eru allir sóknarprestar og sóknarnefndarformenn landsins.  Hins vegar fer ekki saman kjörgengi og kosningaréttur í væntanlegum biskupskosningum.  Kjörgengir til biskups eru einungis þeir, sem lokið hafa guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands.  Er það ekki skrýtið að mega kjósa í tilteknum kosningum en ekki bjóða sig fram?  Ætli þeir hafi frétt af þessu í hundrað og einum Reykajvík?

Magnús Erlingsson, 25/1 2012

Ný sóknarnefnd

Miðvikudagskvöldið 7. desember var haldinn aðalsafnaðarfundur hjá sameinaðri sókn Hnífsdælinga og Ísfirðinga.  Kjörin var ný sóknarnefnd.  Í henni sitja:  Helga Friðriksdóttir, Friðbjörn Óskarsson, Hlynur Snorrason, Björn Baldursson, Anna Katrín Bjarnadóttir, Jósef Vernharðsson og Bjarni Jóhannsson.

Magnús Erlingsson, 7/12 2011

Ljósin í kirkjugarðinum

Margir hafa þann fallega sið að setja ljósakrossa á leiði ástvina sinna á aðventunni.  Komið hefur verið upp tengiboxum bæði í Eyrarkirkjugarði og Réttarholtskirkjugarði.  Gjaldið fyrir hvern ljóskross er 2.500 krónur.  Er það innheimt til að greiða fyrir rafmagnið, tengikassana og vinnu við uppsetningu þeirra.  Það skal líka tekið fram að ljósin í kirkjugarðinum eru tengd við fótósellu og kviknar á þeim þegar dimmt er orðið.

Magnús Erlingsson, 28/11 2011

Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta presta

Á svæðinu frá Þingeyri til Bolungarvíkur skiptast prestarnir á að vera á bakvakt um kvöld, nætur og helgar. Þurfi fólk fyrirvaralítið að ná í prest á þessum tímum þá hringir það í númerið 856-1684 og þá svarar sá prestur, sem er á vaktinni.

Magnús Erlingsson, 23/9 2009

Ísafjarðarkirkja er opin daglega frá kl. 10 til 16. Sóknarprestur er sr. Magnús Erlingsson. Sími prests er 456-3171.

Kirkjuþjónn er Elín Halldóra Friðriksdóttir og grafari er Jón Halldórsson. Sími 456-3560.

Fimmtudagur

Viðtalstími prests er milli 11 og 12. Skrifstofan er uppi á 2. hæð safnaðarheimilisins, gengið inn frá Sólgötu. Síminn er 456-3171.
Fermingarfræðsla er kl. 14:00.
Kirkjukórsæfing kl. 20:00.

Dagskrá ...