
Kirkjulistahátíđ var haldin ađ áliđnum ágústmánuđi í Hallgrímskirkju í 10. skipti. Viđburđir á hátíđinni voru fjölsóttir og lćtur nćrri ađ 7000 gestir hafi sótt Kirkjulistahátíđ. Listflutningur hlaut undantekningalaust afar lofsamleg ummćli gagnrýnenda og erlendir listamenn á hátíđinni lýstu ánćgju sinni međ hvernig stađiđ var ađ verki. Kváđust ţeir allir fúsir ađ koma aftur ţegar henta ţćtti sem er ađstandendum hátíđarinnar uppörvun ţví hér voru m.a. á ferđ margir af fremstu túlkendum passíutónlistar barokktímans um ţessar mundir. Ţá hafa hátíđinni borist kveđjur frá erlendum gestum sem rötuđu á viđburđi Kirkjulistahátíđar og sögđust djúpt snortnir af ţví sem ţar fór fram.
Áfram ...
Hver stórviđburđurinn rekur annan lokahelgi Kirkjulistahátíđar. Hamrahlíđarkórinn frumflytur ţrjú verk hér á landi á tónleikum sínum laugardag 27. ágúst kl. 18, Rúrí fremur viđamikinn gjörning ađ kvöldi sama dags kl. 22 í kirkjuskipi Hallgrímskirkju, frumflutt verđur nýtt verk Johns A. Speight, Drottinn er styrkur minn, viđ hátíđarmessu á morgni lokadags hátíđarinnar og Dómkórinn í Osló flytur Matteusarpassíu eftir norska tónskáldiđ Trond Kverno á lokatónleikum hátíđarinnar sunnudag kl. 17.
Áfram ...
Flutningurinn á Matteusarpassíu Johanns Sebastians Bachs á Kirkjulistahátíđ í Hallgrímskirkju hefur fengiđ frábćra dóma. Verkiđ var flutt sunnudaginn 21. ágúst og mánudaginn 22. ágúst fyrir fullu húsi og féll í einstaklega góđan jarđveg međal tónleikagesta. Gagnrýnendur blađanna voru ţar engin undantekning. Fyrirsögn ritdóms Jónasar Sen í Morgunblađinu er „Stór dagur í Hallgrímskirkju" og Sigurđur Ţór Guđjónsson gefur tónleikunum fimm stjörnur í DV.Áfram ...