![]() |
![]() |
![]() | |
![]() | |||
![]()
Biskupsstofa
Kirkjuþing í Grensáskirkju
|
![]() |
![]() Pétur Kr. HafsteinÁvarp við slit KirkjuþingsÁgætu þingfulltrúar og gestir. Þá er komið að leikslokum á Kirkjuþingi 2006. Þetta þing er að því leyti sérstætt, að til þess var kjörið eftir nýjum reglum, sem mæltu fyrir um fjölgun þingfulltrúa úr 21 í 29. Til þessa þings voru kjörnir 17 leikmenn og 12 vígðir menn, en það hafa að auki setið biskup Íslands, vígslubiskuparnir báðir, fulltrúi guðfræðideildar dr. Hjalti Hugason og fráfarandi kirkjuráðsmaður séra Dalla Þórðardóttir. Framvegis verður það ekki bundið í lög heldur háð vilja Kirkjuþingsins sjálfs, hversu margir verði kallaðir til setu á þinginu, sem samkvæmt þjóðkirkjulögunum fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Það er vissulega verðugt umhugsunarefni á hverjum tíma hvað betur megi fara í störfum Kirkjuþings og hvort ástæða sé til breytinga. Forsætisnefnd mun að fenginni reynslu á þessu þingi gefa þeim málum nokkrun gaum og hafa um það samráð við Kirkjuráð og formenn fastanefnda Kirkjuþings. Fyrir þetta Kirkjuþing voru lögð 25 mál. Þrjú þeirra voru dregin til baka, en hin voru ýmist afgreidd með ályktunum eða samþykkt starfsreglna. Mál skiptust þannig milli nefnda, að löggjafarnefnd fékk átta mál til meðferðar, fjárhagsnefnd átta mál og allsherjarnefnd sex mál, þar á meðal hina umfangsmiklu skýrslu Kirkjuráðs. Þessi þingmál varða bæði ytri umgjörð þjóðkirkjustarfsins og stefnumörkun kirkjunnar í velferðarmálum, eins og ályktanir um stefnu í kærleiksþjónustu og kirkjustarfi, um fjölskyldustefnu þjóðkirkjunnar og eftirfylgd í söfnuðum bera glöggt vitni um. Þá hefur ályktun kenningarnefndar, Þjóðkirkjan og staðfest samvist, hlotið hér brautargengi í góðum friði til frekari meðferðar í söfnuðum og stofnunum kirkjunnar á næsta ári og lokaafgreiðslu á Kirkjuþingi 2007. Það er til marks um, að þjóðkirkjan vill og getur og ætlar sér að leiða þetta mál til farsælla lykta í góðri sátt og samlyndi og lætur ekki ágreining um mismunandi leiðir að sama marki tvístra söfnuði sínum. Til þess er boðskapur Krists um opinn náðarfaðm kirkjunnar alltof dýrmætur. Það er hlutverk okkar í lífinu hvers og eins að búa til góða fortíð og skapa bjarta framtíð, eftir því sem okkur endist vit og hugrekki til. Ég tel, að á þessu þingi höfum við öll saman búið til góðar minningar, góða fortíð, þrátt fyrir einhvern ágreining í önnum dagsins, sem hverfur eins og dögg fyrir sólu, þegar upp er staðið og komið að kveðjustund. Við höfum þannig lagt okkar lóð á þá vogarskál, sem vísar til bjartari framtíðar í kirkjustarfi og íslensku samfélagi. Góðir þingfulltrúar. Ég þakka ykkur öllum samstarf og samveru á þessu Kirkjuþingi og vönduð vinnubrögð í hvívetna. Ég þakka einnig og ekki síður starfólki þingsins og gestgjöfum okkar í þessu húsi og starfsfólki þess ómetanlegt framlag til þinghaldsins. Það hefur allt verið með þeim hætti, að á betra varð ekki kosið. Ég óska öllum góðrar heimferðar og heimkomu og vænti áfram góðrar samvinnu við ykkur öll og endurfunda. Göngum nú glöð og reif út á akurinn, þar sem við höfum skyldum að gegna hvert og eitt, með það dýrmæta vegarnesti, sem við höfum skapað hér á liðnum dögum. Kirkjuþingi 2006 er slitið. |
|
![]() |
|||||||||||||||||||