Kjalarnessprófastsdæmi

 

Prédikunarseminar Kjalarnessprófastsdæmis 18-20. okt. 2009

Prédikunarseminarið er að þessu sinni haldið undir yfirskriftinni Ný trúarmenning í mótun. Dagskráin ber þess einnig merki: kallast er á við hefðbundin þemu í boðun og prédikun en jafnframt slegið á strengi framsækinnar guðfræði samtímans. Gestur seminarsins að þessu sinni er prófessor Wilhelm Gräb frá guðfræðideild Humboldtháskólans í Berlín.
Sjá: Trúarmenning í mótun. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 2/10 2009

Kirkjan á eins árs afmæli hrunsins

Þjóðkirkjan stendur fyrir söfnun í kirkjum landsins fyrir fjölskyldur og heimili sem orðið hafa illa úti í hruninu. Söfnunarfé rennur til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. Mælst er til þess að almenn samskot verði í guðsþjónustum. Einnig verður hægt að gefa beint til Hjálparstarfsins. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 30/9 2009

Leiðarþing Kjalarnessprófastsdæmis 2009

Leiðarþing Kjalarnessprófastsdæmis verður haldið fimmtudaginn 8. október í Víðistaðakirkju. Leiðarþing sitja fulltrúar sóknanna í prófastsdæminu, sem eru sautján talsins. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 22/9 2009

Facebook og kirkjustarfið

Námskeið um notkun Facebook í kirkjustarfi verður haldinn í Kjalarnessprófastsdæmi föstudaginn 9. október en Facebook er einn mest sótti vefurinn á Íslandi í dag og líklega mest sótti samskiptavefurinn. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 22/9 2009

Guðbjörg Jóhannesdóttir er prestur í Hafnarfjarðarkirkju

Valnefnd Hafnarfjarðarprestakalls ákvað á fundi sínum í gær, 2. september, að velja Guðbjörgu Jóhannesdóttur prest við Hafnarfjarðarkirkju. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 4/9 2009

Stjórnunarnámskeið fyrir leiðtoga í söfnuðum

Nú stendur yfir stjórnunanámskeið fyrir presta, djákna og guðfræðinga í Keili á Reykjanesi. Bryndís Blöndal fræðir þátttakendur um ólíkar leiðir í ágreinings- og breytingastjórnun.

Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 4/9 2009

Endurskoðun fermingarfræðsluefnis

Kjalarnessprófastsdæmi hefur ráðið Móeiði Júníusdóttur, guðfræðinema, til þess að endurskoða fermingarfræðsluefni og kennslufræði fermingarstarfanna. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 4/9 2009

Sigurður Grétar sóknarprestur í Sandgerði og Garði

Valnefnd Útskálaprestakalls ákvað á fundi sínum 17. ágúst sl. að velja sr. Sigurð Grétar Sigurðsson til að gegna embætti sóknarprests. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 26/8 2009

Lífleg umræða um Þjóðkirkjuna og lýðræðið

Ráðstefnan Þjóðkirkjan og lýðræðið, sem haldin var í Skálholti í byrjun vikunnar, tókst vel í alla staði. U.þ.b. sjötíu manns voru saman komnir og hlýddu á erindi úr ýmsum áttum, sem öll snertu þó stjórn, stöðu og starfshætti Þjóðkirkjunnar. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 26/8 2009

Þórhallur Heimisson verður sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju

Valnefnd í Hafnarfjarðarprestakalli ákvað á fundi sínum 1. júlí að velja sr. Þórhall Heimisson til að vera næsti sóknarprestur. Lesa áfram …

Kjartan Jónsson, 7/7 2009

Skrifstofa
Skrifstofa prófastsdæmisins er opin mán-fim kl. 9-12.
Sími: 566 7301
Netfang: srgunnar@ismennt.is

Þátttökukirkjan
Þátttökukirkjan snýst um að efla leikfólkið í kirkjunni og gera framlag þess sýnilegt.

Þátttökukirkjan

 

Þverholti 3, 270 Mosfellsbær | Kt. 691281-0199. Sími 5667301 , fax 5667302 · Kerfi RSS