Úr er komin bókin Á mælikvarða mannsins. Leiðir til samtímalegrar prédikunar eftir Wilfried Engemann, prófessor í praktískri guðfræði við Vínarháskóla. Bókin geymir þrettán fyrirlestra sem Engemann hefur flutt á prédikunarseminörum Kjalarnessprófastsdæmis í Skálholti. Gunnar Kristjánsson, prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi, hefur þýtt fyrirlestrana á íslensku og ritar ítarlegan eftirmála um prédikunarfræði í íslensku samhengi. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 14/3 2012
Kynningarfundur vegna biskupskjörs verður haldinn föstudaginn 2. mars næstkomandi kl. 16-19. Prófastsdæmin þrjú á suðvesturhorninu standa saman að fundinum sem verður haldinn í Háteigskirkju. Þar munu frambjóðendur í biskupskjöri svara spurningum. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 29/2 2012
Kærleikshópur Ástjarnarkirkju, sem er vísir að kvenfélagi, stóð fyrir stórkostlegum minningartónleikum í Víðistaðakirkju fimmtudaginn 2. febrúar um félaga úr kór Ástjarnarkirkju, Arndísi Þórðardóttur, sem lést langt um aldur fram úr krabbameikni síðast liðið haust. Um fjögur hundruð manns voru í kirkjunni þetta kvöld og allur ágóði af miðasölu rann til Krabbameinsfélags Íslands. Lesa áfram …
Kjartan Jónsson, 26/2 2012
Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn miðvikudaginn 7. mars n.k. Fundurinn fer fram í Víðistaðakirkju og hefst með eftirmiðdagshressingu kl. 17.30 og helgistund í Víðistaðakirkju kl. 17.45. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 1/2 2012
Kjörstjórn við biskupskosningu hefur, í samræmi við starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 1108/2011, samið kjörskrá vegna kjörs biskups Íslands. Á kjörskrá eru 492. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 1/2 2012
Sr. Árni Svanur Daníelsson leysir sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur af í fæðingarorlofi hennar frá 7. janúar til 7. júlí á þessu ári. Sr. Árni Svanur starfar sem verkefnisstjóri og vefprestur á Biskupsstofu og verður í leyfi frá þeirri stöðu á meðan hann leysir af í prófastsdæminu. Hann er vel kunnugur í prófastsdæminu því hann leysti sr. Kristínu Þórunni af í 50% stöðu frá 1. október 2011.
Árni Svanur Daníelsson, 23/1 2012
Nýr biskup verður kjörinn á þessu ári. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur beðist lausnar frá 30. júní. Kirkjuráð fjallaði um kjörið á fundi sínum í gær og beindi þeim tilmælum til kjörstjórnar við biskupskjör að kjörskrá verði lögð fram 1. febrúar og að kynningarfundir verði haldnir í öllum landshlutum. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 19/1 2012
Prestarnir í Kjalarnessprófastsdæmi þjónuðu í rúmlega 60 messum, guðsþjónustum og helgistundum um jólin. Nokkrar af prédikununum þeirra hafa birst á vefnum Trú.is. Þar hrósa prestarnir og brýna, uppörva, hvetja til góðra verka og varpa ljósi á helgi jólanna, endurlit áramótanna og von nýja ársins. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 3/1 2012
Margir fara í kirkju um jól og áramót. Í kirkjum prófastsdæmisins eru í boði rúmlega 60 guðsþjónustur og messur um hátíðina svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Lesa áfram …
Árni Svanur Daníelsson, 22/12 2011
Aðventufundur með prestum og djáknum í Kjalarnessprófastsdæmi verður haldinn 9. desember n.k. í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á fundinum fer prófastur, dr. Gunnar Kristjánsson, yfir prédikunartexta aðventu og jóla.
Lesa áfram …
Kristín Þórunn Tómasdóttir, 1/12 2011