Langamýri

 

Æskulýðsdagurinn á Löngumýri

Það var ekkert sérstakt veðrið á sunnudaginn var þann 8.mars þegar Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar var haldinn hátíðlegur hér á Löngumýri.

Það var ekkert sérstakt veðrið á sunnudaginn var þann 8.mars þegar Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar var haldinn hátíðlegur hér á Löngumýri. Þrátt fyrir mikið hríðarveður og misjafnar samgöngur sáu um 90 manns ástæðu til að koma til Gospelmessu og kaffisölu fermingarbarna sem er fastur liður á æskulýðsdaginn. Sr. Gísli í Glaumbæ leiddi samkomuna, en nemendur úr tónlistarskólanum í Varmahlíð spiluðu for- og eftirspil ásamt Stefáni organista.

Eins og áður sagði söng kórinn gospellög við undirleik 3ja manna hljómsveitar sem var skipuð auk Stefáns organista, Margeiri Friðrikssyni fjármálastjóra sveitarfélagsins Skagafjörður og Rúnari Péturssyni verkstjóra hjá Vegagerðinni. Var góður rómur gerður að flutningnum og deginum öllum sem er einn af hápunktum kirkjustarfsins hjá okkur.

Á þessum degi eru það fermingarbörnin sem sjá um Vöfflubakstur á fulluveitingarnar, baka vöfflur og ganga um beina, en frjáls framlög eru í kaffisjóðinn. Innkoman fer síðan til að standa straum af menntun ungrar indverskarar stúlku sem prestakallið hefur tekið að sér með þeim hætti að fermingarbörn hvers árs safna með þessum hætti peningum henni til handa.

Gunnar Rögnvaldsson, 13/3 2009 kl. 13.49

     

    Langamýri, 560 Varmahlíð. Sími 453 8116 , fax 453 8808 · Kerfi RSS