Langamýri

 

Fermingarfræðsla og fjör

Nú í vikunni komu fermingarbörnin úr Varmahlíðarskóla aftur til okkar en í þetta skiptið var tilgangurinn að eiga saman dagstund með sr. Sigurði Grétari æskulýðsfulltrúa og sr. Gísla sem fermir flest barnanna.

Hópurinn kom uppúr hádeginu og þá tók við fræðlan, en 8.bekkur Varmahlíðarskólaboðorðin 10 var megininntak fræðslunnar. Meðal þess sem gert var voru stuttmyndir unnar uppúr boðorðunum og var gaman að sjá hve frumlegar útfærslurnar voru. Eftir kaffið var frjáls tími í pottinum en svo áframhaldandi fræðsla.

Allir voru ánægir er heim var haldið um kvöldið enda hópurinn samheldinn og náðu prestarnir að fara yfir mikið efni með áhugasömum lærisveinum og meyjum.

Gunnar Rögnvaldsson, 13/3 2009 kl. 14.38

     

    Langamýri, 560 Varmahlíð. Sími 453 8116 , fax 453 8808 · Kerfi RSS