Sumarið er liðið
Viðburðaríkt sumar er að baki hér á Löngumýri en ekki hefur verið hægt að gera því skil í myndum og máli vegna vandamála með vefinn sem nú er kominn í lag í nýju umhverfi sem vonandi skilar ykkur einhverjum tíðindum og fréttum af starfinu.
Eins og undangengin sumur var margt um manninn og fullbókað í öll tímabil eldri borgara, fatlaðra og sumarbúðir sykursjúkra. Afar vel tókst til með orlofsdvöl fyrir ekkjur og ekkla og sömuleiðis komu margir í hvíldardvöl krabbameinssjúkra. Nú í haust hafa konur hvarvetna af landinu komið saman á bútasaumsnámskeið undir leiðsögn Kristrúnar í Quiltbúðinni á Akureyri, kátir og skemmtilegir hópar sem lífga upp á staðinn. Á næstu dögum og vikum fara fermingarbörnin héðan úr grendinni og úr Glerárkirkju að koma en það er árviss viðburður. Sömuleiðis styttist í TTT mót barna úr Húnavatns og Skagafjarðarprófastdæmum sem ávallt eru hlaðin gleði og einlægni undir styrkri stjórn sr Sigurðar Grétars á Hvammstanga sem innan tíðar hverfur til nýrra starfa suður með sjó. Verður hans sárt saknað úr æskulýðsstarfinu. Óskum við honum og fjölskyldunni velfarnaðar í framtíðinni.
Gunnar Rögnvaldsson, 13/10 2009 kl. 12.35

