Langamýri

 

….og það er saumað og saumað!

Undanfarnar helgar hafa saumavélarnar vart þagnað hérna á Löngumýri þegar hin sívinsælu bútasaumsnámskeið undir leiðsögn Kristrúnar í Quiltbúðinni á Akureyri hafa verið í gangi.  Engin takmörk virðast fyrir því hvaða listaverk hægt er að búa til með þessum hætti og m.a. færði Kristrún staðnum að gjöf forláta veggteppi sem þakklæti fyrir samstarfið. Færum við henni okkar bestu þakkir fyrir. Mynd af teppinu verður birt síðar.

Sýnishorn af listmunum saumakvenna

Sýnishorn af listmunum saumakvenna

Gunnar Rögnvaldsson, 16/10 2009 kl. 12.49

     

    Langamýri, 560 Varmahlíð. Sími 453 8116 , fax 453 8808 · Kerfi RSS