Haustdagur í Skagafirði
Það er ekkert vafamál að veturnætur eru um næstkomandi helgi, en dagurinn í dag er ekki fyrirboði harðinda. Stilla og bjartviðri, lítilháttar föl í Blönduhlíðarfjöllunum svona rétt til þess að auka á mikilfengleika þeirra. Friður yfir hrossunum
og þau sem betur fer áhyggjulaus yfir þrasi um ástandið í landinu. Það eru svona dagar sem minna okkur á að þrátt fyrir allt er Ísland lang best
Gunnar Rögnvaldsson, 19/10 2009 kl. 15.23