Gleði, gleði, gleði…..
Það var sannarlega líflegt hér um helgina þegar hið árlega TTT haustmót fór fram. Þá komu saman börn frá Hvammstanga, Sauðárkróki, Skagaströnd, Hofsósi og Hólum ásamt leiðtogum sínum og prestum, blönduðu geði í söng og leik og meðtóku fræðslu um kristin gildi.
Að óbreyttu var þetta síðasta mótið undir stjórn Sigurðar Grétars á Hvammstanga, en honum hefur í sparnaðarskyni, verið sagt upp störfum sem fræðslufulltrúa Húnavatns og Skagafjarðarprófastdæma. Hvert framhaldið verður er óráðið, en vissulega er ekki einungis eftirsjá af Sigurði sem einstökum leiðtoga, heldur má einnig setja spurningarmerki við hvar borið er niður í sparnaðinum. Þessi mót sem hluti æskulýðsstarfsins hafa undantekningalaust heppnast vel og gefið börnum í þessum byggðalögum tækifæri á að hittast og þannig brúað ákveðið bil. Er þetta mót dregið hér út úr en vissulega setur þetta önnur æskulýðsmál sem embættið hefur sinnt af kostgæfni í ákveðið óvissuástand.
Gunnar Rögnvaldsson, 28/10 2009 kl. 13.44


