Aðventusamkoma Glaumbæjarprestakalls
Annan sunnudag í aðventu var aðventuhátíð Glaumbæjarprestakalls haldin hér á Löngumýri eins og venja er. Dagskráin var fjölbreytt með virkri þátttöku fermingarbarna, kórs, nemenda tónlistaskólans að kirkjuskólabörnunum ógleymdum er sýndu helgileik. Sr. Gísli Gunnarsson stýrði samkomunni og las jólasögu. Samkoman var fjölmenn og að henni lokinni áttu gestir notalega samveru yfir veislukaffi í boði sóknarnefnda prestakallsins.
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls er ákaflega virkur hér í safnaðarstarfinu og þar á stjórnandinn Stefán Gíslason mestan heiður af fyrir þrotlausan áhuga og einstaka hæfileika. Auk söngs við almennar athafnir hefur kórinn, sem telur um 40 félaga flutt Gospel dagskrá á nokkrum stöðum á árinu og nú á aðventunni hyggst hann flytja messu eftir Schubert ásamt einsöngvara og hljómsveit, fyrst í Blönduóskirkju þann 13. des. og í menningarhúsinu Miðgarði 15. desember en þar munu sr. Hjálmar Jónsson og Eyþór Árnason frá Uppsölum einnig lesa úr verkum sínum.
Gunnar Rögnvaldsson, 7/12 2009 kl. 11.23


