Dagskrá
Starfsáætlun Löngumýrar 2007-2008
Eftirfarandi er starfsáætlun Löngumýrar fyrir komandi starfsár, en leitast er við eftir fremsta megni að hafa fjölbreytta efnisskrá svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, lærðir sem leikir. Auk námskeiða er einnig að finna starfsemi sem fest hefur sig í sessi og telst orðið til fastra liða á dagskránni
Viðburðir:
Fermingarbarnamót. Áframhald verður á heimsóknum fermingarbarna af Norðurlandi sem verið hefur fastur liður starfseminnar til margra ára. Þessar heimsóknir eru þó á undanhaldi, fáir gista, en aðrir eru einungis á dagsnámskeiðum.
9.-10. bekkur. “Á krossgötum”. Velheppnað heimboð 10.bekkinga til Löngumýrar endurtekið og stefnt að stækka hópinn. 10.bekkingum er til dagskrár þar sem rætt er um þær breytingar og áreiti sem fylgja því að yfirgefa grunnskólann og takast á við framhaldsskólanám. Sjálfsmyndin skoðuð og lögð áhersla á sjálfstyrkingu, forvarnir.
Kirkjuskóli. Verður reglulega á sunnudagsmorgnum fyrir Glaumbæjarprestakall með heimsóknum annarra kirkjuskóla á svæðinu. Inn í það starf fléttast stundum leiksýningar grunnskólanna auk þess sem Stopp leikhúsið er hér árlegur gestur.
TTT starf. Prestar í nágrenninu dvelja árlega yfir helgi með TTT hópa við leiki og störf. Einnig verða dagsheimsóknir yngri barna í kirkjustarfi.
Eldri borgarar verða með reglulegar samverustundir yfir vetrarmánuðina.
Prestafundir presta í Skagafjaraðarprófastsdæmi eru mánaðarlega, ásamt aukafundum þess á milli.
Foreldrastundir, verða hálfsmánaðarlega frá hausti til vors, einkum ætlaðir sem spjall og samverustundir fyrir foreldra ungra barna.
“Útsýni til annarra landa“. Kvöldsamverur þar sem fólk af erlendu bergi brotið kemur og fræðir um siði og venjur í kringum þeirra helgihald. Jafnframt býðst gestum að smakka á veitingum frá viðkomandi löndum.
Athafnir kirkjunnar. Námskeið á vegum presta prófastdæmisins þar sem leikmenn eru fræddir um ýmsa siði, venjur og útfærslur í tengslum við margvíslegar kirkjuathafnir.
Leikmannaskólinn. Leitað verður eftir námskeiðum á vegum hans, og samstarfi við fræðsludeild biskupsstofu. Meðal annars verður framhald á vel heppnuðu Jesú- bíói.
Námskeið fyrir kirkjuverði og safnaðarfólk er góður kostur fyrir þann stórar hóp fólks sem gegnir þessum mikilsverðu trúnaðarstörfum fyrir kirkjurnar sínar.
Fyrirlestrar:
Kristniboð. Kynning á kristiboði í Afríku, myndarsýningar og fræðsla á vegum sr. Helga Hróbjartssonar
Sumarbúðir. Næsta sumar verður áframhald á samvinnu Löngumýrar og Rauða krossins um sumarbúðir fyrir fatlaða sem verið hafa í gangi undanfarin sumur og heppnast mjög vel. Rauði krossinn fyrirhugar einnig sumarbúðir fyrir ófötluð börn með svipuðu fyrirkomulagi og er það í skoðun.
Eldri borgarar. Orlofsdvöl eldri borgara í samvinnu við Ellimálaráð Reykjavíkurprófastdæmis og félaga eldriborgara hefur náð fótfestu að nýju og tekur yfir nokkrar vikur sumarsins og fram á haust. Í boði er skemmtileg dvöl með ferðalagi og fjölbreyttum kvöldvökum, gleði og góðu samfélagi.
Sykursjúk börn. Undanfarin sumur hefur foreldrafélag sykursjúkra barna staðið fyrir sumarbúðum fyrir skjólstæðinga sína þar sem tekist er á við líf og leik með jafningjum, undir stjórn lækna og hjúkrunarfólks. Rauði krossinn hefur einnig lagt þessari starfsemi til sjálfboðaliða.
Krabbameinssjúklingar. Boðið verður uppá hvíldardvöl fyrir krabbameinssjúklinga sem eru á milli meðferða eða í endurhæfingu, þar sem lögð er áhersla á rólegt andrúmsloft og afslöppun í bland við fræðslu og uppbyggingu. Hér er bæði um að ræða helgardvöl að vori, vikudvalir að sumri og langa helgi í upphafi jólaföstu. Góð reynsla er kominn á þessa starfsemi og ljóst að mikil þörf er til staðar sem þarf að sinna. Fyrirhugað er að flétta kyrrðardag inn í dvölina og hefur þeim hugmyndum verið vel tekið af gestum.
Kyrrðardagar. Í júlí næstkomandi verður 10 daga kyrrðarnámskeið í umsjón sr. Vigfúsar Ingvarssonar á Egilsstöðum þar sem erlendir leiðbeinendur koma m.a. að þátttöku.
Helgihald í náttúrunni. Langamýri mun ásamt prestum svæðisins standa fyrir helgihaldi í sumar þar sem reynt verður að ná til fólks utan hinnar formlegu messuumgjarðar.
Krisniboðsmót FÍK er fastur liður á hverju sumri og hefur verið vel sótt og gleðileg samkoma í rúm 25 ár.
Guðsþjónustur og tónleikar. Fastir liðir eru t.d. aðventusamkoma prestakallsins. Samkoma á æskulýðsdaginn, fjölskyldumesur o.fl. Þess utan eru svo skírnir, brúðkaup og jafnvel fermingar, sem beðið er um að fá að hafa í kapellunni.
Annað: Auk framangreindrar dagskrár verður leitast við að nýta lausar stundir á Löngumýri til ýmissa starfa og námskeiða auk fundahalda, en töluverð eftirspurn er ávallt eftir slíkri aðstöðu.
Fh Löngumýrarnefndar
Gunnar Rögnvaldsson