Langamýri

 

Gisting

Á Löngumýri er mjög góð aðstaða til lengri eða skemmri dvalar. Gisting er fyrir 26 manns í 15 herbergjum, 4 eins manns og 11 tveggja manna. Herbergin eru með sameiginlegum snyrtingum, en þær eru margar svo aðeins eru tvö herbergi um hverja þeirra. Að auki er íbúð á efri hæð í gamla húsi sem möguleiki er á að nýta ef á þarf að halda.

Bjartur og rúmgóður matsalur fyrir 100 manns. Kapella og fundarsalur ásamt notalegri setustofu skapa heimilislega umgjörð.

 Allt húsnæðið er á einni hæð og mjög gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Gróskumikill garður með heitum pottum setur mikinn svip á umhverfið.

Ýmis þjónusta er í Varmahlíð aðeins 1,5 km í burtu og fjölbreytt afþreying í boði víðsvegar um Skagafjörð.

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 453 8116 eða með tölvuskeyti á netfangið langamyri@kirkjan.is.

  

     

    Langamýri, 560 Varmahlíð. Sími 453 8116 , fax 453 8808 · Kerfi RSS