Langamýri

 

Velheppnuð námskeið

Sr. Kristján Valur IngólfssonFyrr í þessum mánuði voru haldin tvenn námskeið á Löngumýri. Hið fyrra var ætlað meðhjálpurum og öðru starfsfólki kirkna og var það í umsjá Sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar. Hann er einn helsti sérfræðingur í litúrgíu og sannkallaður fróðleiksbrunnur um allt sem við kemur helgihaldi.

Hið síðara var námskeið fyrir heimsóknarvini. Er von kirkjunnar að geta sem víðast komið á skipulegri og faglegri heimsóknaþjónustu, þar sem sjálfboðaliðar taka að sér að fara út í söfuðinn og heimsækja reglulega fólk sem af einhverjum ástæðum er einangrað eða í sérstakri þörf fyrir félagsskap. Ragnhildur Sverrisdóttir djákni og yfirmaður kærleiksþjónustusviðs Biskupsstofu kenndi.Ragnhildur Sverrisdóttir djákni

Á báðum námskeiðunum var ágæt þátttaka og gerður góður rómur að frammistöðu fyrirlesara.

Sigríður Gunnarsdóttir, 22/3 2006

Dagskrá námskeiðs

Hér má lesa dagskrá námskeiðs fyrir meðhjálpara og annað áhugafólk um kirkjustarf. Munið að tilkynna þátttöku fyrir 8.mars í síma 453 8116 eða á netfangið langamyri@kirkjan.is.

Lesa áfram …

Sigríður Gunnarsdóttir, 7/3 2006

Námskeið um heimsóknarþjónustu

Námskeið um heimsóknarþjónustu sem féll niður á dögunum verður mánudaginn 13. mars, kl.18-22. Hægt að nálgast upplýsingar um námskeiðið í fyrri fréttum neðar á síðunni.

Sigríður Gunnarsdóttir, 28/2 2006

Námskeið fyrir meðhjálpara, kirkjuverði og sóknarnefndarfólk

Námskeið fyrir meðhjálpara, kirkjuverði og sóknarnefndarfólk verður haldið að Löngumýri, laugardaginn 11. mars n.k, kl.10-17. Á námskeiðinu er fjallað um kirkjuhúsið, helga gripi, hið heilaga rými, tákn og atferli. Einnig er fjallað um umhirðu og vörslu skrúða og kirkjugripa. Skoðuð er saga og grundvöllur meðhjálparaembættisins og fjallað um meginviðfangsefni meðhjálparastarfanna. Einnig er frætt um guðsþjónustu safnaðarins og verkefni þeirra sem í henni þjóna.

Þetta er sama námskeið og átti að vera í október s.l. en varð ekki af vegna veðurs. Nú verður reynt aftur og vonumst við til að verðurguðirnir verði okkur hliðhollir í þetta skiptið.

Lesa áfram …

Sigríður Gunnarsdóttir, 20/2 2006

Námskeið fyrir heimsóknarvini frestast vegna veikinda.

Námskeið fyrir heimsóknarvini frestast vegna veikinda. Námskeiðið sem Ragnheiður Sverrisdóttir djákni ætlaði að vera með í kvöld hér á Löngumýri frestast um óákveðinn tíma vegna veikinda fyrirlesara. Nánar auglýst síðar.

Gunnar Rögnvaldsson, 17/2 2006

Námskeið um heimsóknarþjónustu

Námskeið um heimsóknarþjónustu í söfnuðum verður að Löngumýri, föstudaginn 17. febrúar frá kl.18-22. Þar mun Ragnheiður Sverrisdóttir djákni frá Biskupsstofu kynna nýtt fræðsluefni til að nota í heimsóknarþjónustu safnaðanna. Margir söfnuðir sinna heimsóknarþjónustu og aðrir vilja taka hana upp. Heimsóknarþjónusta er ólaunað framlag einstaklinga á vegum kirkjunnar í þágu annarra en ættingja og vina.

Markmið fræðsluefnisins er að samræma skipulag heimsóknarþjónustu kirkjunnar og stuðla að faglegum vinnubrögðum og setja skýr markmið sem auðvelda söfnuðum að vinna kerfisbundið og markvisst að öfluguri þjónustu.´

Í öllum söfnuðum er þörf fyrir slíka heimsóknarþjónustu, því alltaf eru einhverjir sem fáa eiga að en þiggja með þökkum samfélag við aðra.

Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið eru veittar í síma 453 8116. Það er opið öllum áhugasömum og gjaldfrítt.

http://kirkjan.is/kirkjustarf/?safnadarstarf/heimsoknarthjonusta

Lesa áfram …

Sigríður Gunnarsdóttir, 6/2 2006

Mömmur athugið!

Hittumst næst þriðjudaginn 31.janúar, kl.13-15 og svo annan hvern þriðjudag á sama tíma. Verið velkomnar með krílin ykkar, smá og stór!

Sigríður Gunnarsdóttir, 30/1 2006

Mömmustundir á Löngumýri

Næstkomandi þriðjudag, þann 17.janúar milli eitt og þrjú, eru mæður og feður ungra barna boðin velkomin í Löngumýri með litlu krílin. Undanfarin ár hafa mömmur (og einstaka sinnum pabbar) komið saman á Löngumýri, til þess að eiga notalega stund saman, sýna sig og sjá aðra. Eldri systkin eru að sjálfsögðu velkomin, en gjarnan má taka með bók eða dót til að þau hafi eitthvað við að vera.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Sigga, Gunni og annað starfsfólk Löngumýrar

Sigríður Gunnarsdóttir, 12/1 2006

Útgáfutónleikar Karlakórsins Heimis verða í kvöld

Karlakórinn Heimir heldur útgáfutónleika hér á Löngumýri í kvöld, en fyrir skömmu kom út hljómdiskurinn “Heyr himna smiður” sem inniheldur aðventutónlist.

Lesa áfram …

Gunnar Rögnvaldsson, 1/12 2005

Mörg börn komu á TTT mótið um síðustu helgi

Fjöldi barna frá Hvammstanga, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hólum og Hofsósi dvaldi á Löngumýri um síðustu helgi á árlegri samkomu TTT hópa safnaðanna á stöðunum.

Lesa áfram …

Gunnar Rögnvaldsson, 1/12 2005

Á DÖFINNI:

13/10 Háskólanemar úr Háskólanum í Reykjavík

14/10-15/10 Fulltrúaráðsfundur krabbameinsfélaganna

17/10 Prestafundur í prestafélagi Hólastiftis

18/10 Eldri borgarar Skagafirði. Fermingarbörn úr Skagafirði

19/10 Fermingarbörn

20/10 Fræðslufundur Hjúkrunarfræðinga á NV-landi

21/10 Fermingarbörn úr Glerárkirkju

22/10 Brúðkaupsveisla


Aðrir vefir:

· Þjóðkirkjan
· Hólar
· Sveitarfélagið Skagafjörður
· Skálholtsskóli
· Skagafjörður.com
· Hofsós- og Hólaprestakall
· Sauðárkrókskirkja

 

Langamýri, 560 Varmahlíð. Sími 453 8116 , fax 453 8808 · Kerfi RSS