Veitingar
Á Löngumýri er bjartur og rúmgóður matsalur fyrir 100 manns. Hópar geta pantað salinn fyrir veislur, fundi eða samkomur. Fyrir utan hið hefðbundna starf er salurinn eftirsóttur fyrir fermingarveislur, brúðkaup og margvísleg námskeið og fundi. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og veitingar eru veittar í síma 453 8116 eða í netfanginu langamyri@kirkjan.is.
Matur er mannsins megin.
Á Löngumýri er mikið lagt uppúr hefðbundnum heimilismat enda Skagfirskt hráefni úrvals gott. Lambakjötið er að sjálfsögðu í öndvegi, en Hólableikjan framreidd eftir leynilegum uppskriftum slær alltaf í gegn.Yfirleitt er maturinn borinn fram á hlaðborð þar sem gestir ganga að honum. Þetta skapar léttara andrúmsloft og eykur valmöguleika gesta.
Allt kaffibrauð er bakað heima og svífur þá andi fyrrum heimavistarskóla yfir vötnum.