Langholtskirkja

 

Vorhátíð Langholtssóknar 20. maí

Hátíðarmessa verður í Langholtskirkju næsta sunnudag, 20. maí kl.11.00. Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup predikar, sr Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.  Orgel Jón Stefánsson og fyrrum félagar í Kór Langholtskirkju syngja. Messan verður rittúlkuð. Fjölskylduskemmtun að lokinni messu kl. 12.00. Fjölbreytt skemmtiatriði. Útimarkaður. Gerið góð kaup á markaðnum - Fjöldi góðra muna á ótrúlega góðu verði. Hoppukastali fyrir börnin, kaffisala og grillaðar pylsur. Samverustund fyrir alla fjölskylduna.

Margrét Guðjónsdóttir, 18/5 2012

Kór Langholtskirkju flytur Messías eftir Händel

Kór Langholtskirkju flytur Messías eftir Handel í Langholtskirkju sunnudaginn 20. maí kl. 20. Miðasala á midi.is. Sjá nánar  Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 10/5 2012

Messa 13. maí kl. 11.00. Ólöf Kolbrún Harðardóttir predikar

Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 13. maí kl. 11.  Afmælisár Langholtssafnaðar. Söfnuðurinn fagnar 60 ára afmæli og af því tilefni fáum við Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur óperusöngkonu til að prédika.  Hún hefur tekið þátt í starfi safnaðarins í áratugi, sungið, kennt, sinnt messuþjónustu og verið í sóknarnefnd. Gradualekór Langholtskirkju syngur. Heyrnarhjálp fagnar 75 ára afmæli og ætla afmælisbörnin að eiga samstarf af því tilefni. Messan verður rittúlkuð  Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ingunnar Huldar og Arons.  Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi og djús á eftir.

Margrét Guðjónsdóttir, 8/5 2012

Messa og sunnudagaskóli, 6. maí kl. 11

Messa og sunnudagaskóli, sunnudaginn 6. maí kl. 11.  Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti Jón Stefánsson.  Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ingunnar Huldar og Arons.  Kaffisopi og djús eftir messu.

Margrét Guðjónsdóttir, 4/5 2012

Karlakórinn Fóstbræður

Karlakórinn Fóstbræður með tónleika í Langholtskirkju, 1., 2., 3. og 5 maí  n.k. Sjá Tónleikar/Listviðburðir

Margrét Guðjónsdóttir, 29/4 2012

Bubbi Morthens í guðsþjónustu á sunnudag

Í tilefni 60 ára afmælis safnaðarins kemur Bubbi Morthens og syngur trúarlögin sín í guðsþjónustu á sunnudag kl. 11.  Hann ólst upp í hverfinu.  Guðsþjónustan verður rittúlkuð í samstarfi við Heyrnarhjálp sem á 75 ára afmæli í ár.  Sunnudagaskóli á sama tíma.  Verið hjartanlega velkomin!

Sigrún Óskarsdóttir, 27/4 2012

Vorsöngvar Karlakórs Reykjavíkur

Vorsöngvar Karlakórs Reykjavíkur í Langholtskirkju, þriðjudaginn 24., miðvikudaginn 25., fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.00 og laugardaginn 28. apríl kl. 16.00. Stjórnandi Friðrik Karlsson. sjá nánar Tónleikar/Listviðburðir

Margrét Guðjónsdóttir, 23/4 2012

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 22. apríl kl. 11.00

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 22. apríl, kl. 11.00. Prestur  Irma Sjöfn Óskarsdóttir, orgel Jón Stefánsson, Kórskólinn syngur undir stjórn Þóru Björnsdóttur.  Barnastarfið í safnaðarheimilinu með Ingunni Huld og Aroni.

Margrét Guðjónsdóttir, 18/4 2012

Sumardagurinn fyrsti, fermingarmessa 19. apríl kl. 11.00

Fermingarmessa, sumardaginn fyrsta kl. 11.00.  Sr. Guðný Hallgrímsdóttir fermir, Jón Stefánsson leikur á orgel og Gradualekór Langholtskirkju syngur við athöfnina.

Margrét Guðjónsdóttir, 18/4 2012

Aðalsafnaðarfundur 15. apríl eftir messu

Aðalsafnaðarfundur Langholtssóknar verður haldinn 15. apríl eftir messu. Venjuleg aðalfundarstörf.

Sóknarbörn eru hvött til að sækja fundinn og taka þátt í umræðu um starfið í kirkjunni í nútíð og til framtíðar.

Margrét Guðjónsdóttir, 12/4 2012

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Fimmtudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15.
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.

Dagskrá ...