Hátíðamessa sunnudaginn 13. maí kl. 11
Opnuð verður sýning á 10 höklum og stólum og altarisdúk og klæði sem Herder Andersson hefur saumað (sjá hér neðar á síðunni). Séra Kristján Valur Ingólfsson predikar
og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Kammerkór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar organista. Eftir opnun sýningarinnar verður boðið upp á súpu og kaffi og köku í safnaðarheimilinu.
Jón Helgi Þórarinsson, 9/5 2007 kl. 17.54