Langholtskirkja

 

Sýning á höklum og altarisklæði

Sunnudaginn 13. maí verður opnuð sýning á altarisdúk, altarisklæði og 10 höklum og stólum sem Herder Andersson, sóknarbarn í Langholtssöfnuði, hefur hannað og saumað.
Altarisdúkurinn var helgaður við messu á kirkjudegi Langholtssafnaðar 17. september 2006 og altarisklæðið á allra heilagra messu í byrjun nóvember 2006 ásamt með hátíðahökli og stólu.
Dúkurinn og klæðið eru saumaðir með harðangur- og klaustursaumi og eru á þeim kristin tákn sem og hið þekkta vers úr 23. Davíðssálmi: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

Herder hefur á síðustu mánuðum saumað alls 10 hökla í öllum litum kirkjuársins ásamt með stólum. Fimm höklanna hefur hann gefið Langholtskirkju og einn hökulinn gefið sóknarprestinum. Efnið og litina hefur hann valið sem og hannað allt munstur sjálfur og er það bæði hefðbundið en einnig nýstárlegt. Hvert einasta spor er síðan saumað í höndum en Herder á ekki saumavél.

Jón Helgi Þórarinsson, 9/5 2007 kl. 17.46

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS