Tónleikar Kammerkórsins sunnudag kl. 17
Kammerkór Langholtskirkju syngur mótettur eftir J.S Bach, Brukner og Nysted ásamt þremur hljóðfæraleikurum.
Mótettur Bach eru einhver glæsilegustu “virtuósaverk” sem samin hafa verið
fyrir kór. Bach samdi þær á Leipzigerárum sínum. Þær voru allar samdar
fyrir sérstök tilefni eins og flest kirkjulegu verka hans. Það sem
einkennir þær er formfestan. Þannig eru Lobet den herrn og Singet den
Herrn í sama formi og hljómsveitarkonsertar hans, hratt - hægt - hratt og
Jesu meine Freude, sem er lengsta mótetta hans er í ellefu þáttum sem
mynda “symmetrískt” form þannig að fyrsti og síðast þáttur hafa samsvörun
og annar og tíundi eru byggðir upp á sama efnivið o.s.frv.
Tómas Guðni Eggertsson, Sigurður Halldórsson og Richard Korn leika með í
tveimur mótettum á barok orgel, selló og kontrabassa.
Kammerkór Langholtskirkju er 17 manna hópur söngvara úr Kór
Langholtskirkju. Þeir hafa allir stundað söngnám og hafa mjög langa
kórreynslu.
Efnisskráin er:
Laudate eftir Knut Nysted
Tvær mótettur eftir Anton Bruckner
Graduale (Locus iste)
Graduale (Cristus factus est)
Þrjár mótettur eftir Johann Sebastian Bach
Lobet den Herrn - BWV 230
Jesu, meine Freude - BWV 227
Singet dem Herrn ein neues Lied - BWV 225 fyrir tvo kóra.
Jón Helgi Þórarinsson, 9/5 2007 kl. 17.50