Fjáröflun og tónleikar laugardaginn 19. maí kl. 14 - 18
til styrktar þeim börnum sem lifa við afleiðingar Tjernobyl kjarnorkuslyssins árið 1986. Nemendur í Langholtsskóla standa fyrir þessari dagskrá.
Þeir hafa fengið ýmsa listamenn til liðs við sig, tónlistarfólk, kóra, leikara og fleiri. Veitingar seldar. Aðgangur er ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum til þess verkefnis.
Jón Helgi Þórarinsson, 17/5 2007 kl. 18.07