Langholtskirkja

 

Stórtónleikar - tvær kantötur e J.S.Bach

Kór Langholtskirkju heldur tónleika fimmtudaginn 24. maí kl. 20 ásamt einsöngvurum og kammerhljómsveit. Stjórnandi er próf. Michael Radulescu frá Vínarborg, en hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir túlkun sína á tónlist J.S. Bach.
Önnur kantatan - Ich hatte viel bekummernis - er ein sú lengsta sem Bach samdi en hin - Ihr Tore zu Zion - er miklu styttri og hefur próf Radulescu búið hana í þann búning sem heyra má á fimmtudaginn. Próf. Radulescu var kennari Jóns Stefánssonar organista úti í Vínarborg og hefur hann áður komið til Íslands til tónleikahalds en hann er víðfrægur organisti. Einsöngvarar eru: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Þorbjörn Rúnarsson og Bergþór Pálsson. Nokkuð stór kammersveit leikur með og er Júlíana Kjartansdóttir konsertmeistari.
Miðasala er hjá kórfélögum eða á midi.is.
Miðaverð er kr. 3.500.

Jón Helgi Þórarinsson, 21/5 2007 kl. 23.39

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS