Langholtskirkja

 

Tónleikar Gradaulekórs Langholtskirkju

laugardaginn 9. júní kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Kynnt verður ný plata kórsins. Dans og hljóðfæraleikur.
Gradualekór Langholtskirkju heldur í tónleikaferð til Slóveníu n.k. sunnudag.
Af því tilefni og í tilefni útkomu nýs geisladisks heldur kórinn tónleika í Langholtskirkju n.k. laugardag kl. 17. Á efnisskránni eru íslensk og erlend verk, m.a. eftir Bach, Caccini, Pablo Casals, úr kvikmyndinni Kórstjórinn eftir Bruno Coulais, Bítlana og Rossini.
Einsöngvarar eru úr röðum kórfélaga og undirleikari Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Aðalheiður Halldórsdóttir, dansari úr Íslenska dansflokknum, hefur samið hreyfingar fyrir kórinn og dansar einnig sjálf. Aðgangur er ókeypis en nýi geisladiskurinn verður til sölu á kynningarverði.
Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson.

Jón Helgi Þórarinsson, 6/6 2007 kl. 23.12

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS