10 bekkur í Langholtsskóla safnaði fyrir börn í Tjernobyl
19. og 20. maí hélt hópur ungs fólks úr 10. bekk í Langholtsskóla fjáröflun og tónleika í Langholts- og Áskirkju. Afraksturinn var kr. 377.000. Myndir sem Ásgeir Pétursson tók má sjá á myndasíðu Langholtskirkju.
Þessi fjáröflun var að frumkvæði unga fólksins og fengu þau leikara og tónlistarfólk til liðs við sig. Einnig seldu þau veitingar sem þau útbjuggu ásamt foreldrum. Fulltrúar kennara hjálpuðu unga fólkinu við þetta lofverða framtak.
Jón Helgi Þórarinsson, 3/7 2007 kl. 13.11