Langholtskirkja

 

Orgeltónleikar sunnudaginn 8. júlí kl. 17

Danski organistinn Vibeke Astner leikur á orgel Langholtskirkju en hún hefur haldið tónleika víða um Evrópu.
Vibeke Astner stundaði nám í organleik og kórstjórn við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og lauk síðan einleikaraprófi í organleik frá Swelinck tónleistarskólanum í Amsterdam.
Hún hefur haldið orgeltónleika um alla Evrópu bæði sem einleikari og þátttakandi með kammerhópum og komið margsinnis fram bæði í útvarpi og sjónvarpi í Danmörku.
Síðasti geisladiskur hennar er Virtuos music from Venice² og inniheldur gamla orgeltónlist. Undanfarið hefur hún sérhæft sig verkum Messiaen og diskur með verki hans Les corps glorieux kemur út í október n.k.

Jón Helgi Þórarinsson, 4/7 2007 kl. 9.41

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS