Kórtónleikar sunnudagskvöldið 29. júlí
Skeppsholmens fredskör, (Friðarkór Skipahólma) frá Stokkhólmi heldur tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 29. júlí kl. 20.
Kórinn var stofnaður 1987 af kórstjóranum, Hans Rising og er hluti af starfsemi Lýðháskólans á Skipahólma. Markmið kórsins er að syngja fyrir friði, náttúruvernd og jafnrétti. Kórinn er í fleiri en einum skilningi á faraldsfæti því kórfélagar koma víða að og ferðast til Stokkhólms eina helgi í mánuði til æfinga og ferðast auk þess um heiminn. Kórinn hefur haldið tónleika á Ítalíu, Spáni, Bolivíu, á norðurlöndunum, auk tónleika í Svíþjóð.
Kórinn hefur í þessari viku tekið þátt í Sænskum dögum á Húsavíkurhátíð. Kórfélögum er margt til lista lagt því þeir hafa staðið fyrir margskonar námskeiðum á hátíðinni, m.a. leiklistarnámskeiði, keramiknámskeiði, námskeiði í sænskum þjóðdönsum, kennt trommuslátt og grímugerð og sjóhnútagerð auk þess sem kórinn hélt tónleika í Laxárvirkjun og Húsavíkurkirkju.
Á efnisskránni í Langholtskirkju verða norræn verk, einnig íslensk, verk eftir Evert Taube, Dowland, lög frá Haiti, Kúbu og Georgiu. Mörg verkanna eru í léttri sveiflu og leika kórfélagar með á píanó, saxófón og kontrabassa.
Jón Helgi Þórarinsson, 23/7 2007 kl. 19.13