Orgeltónleikar
Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju, heldur orgeltónleika í Langholtskirkju sunnudagskvöldið 4. nóvember kl. 20. Myndasýning verður af orgelverkunum sem útskýrir þau.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð Listafélags Langholtskirkju og er fólk hvatt til að ganga í Listafélagið og fá verulegan afslátt á tónleikum í vetur. Kl. 19 verður mótttaka fyrir meðlimi í Listafélaginu þar sem að organistinn mun kynna verk kvöldsins en hann mun leika verk eftir Buxtehude.
Jón Helgi Þórarinsson, 30/10 2007 kl. 21.43